Fara í efni
Fréttir

Fólk hvatt til skilja bílinn eftir heima

Evrópska samgönguvikan hefst í dag, fimmtudag. Akureyrarbær tekur þátt og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nota í staðinn umhverfisvæna og heilsusamlega samgöngumáta.

„Frá árinu 2002 hafa bæir og borgir víða um Evrópu tekið þátt í sameiginlegu átaki vikuna 16. - 22. september. Markmiðið er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem allt í senn eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft. Yfirskrift vikunnar í ár er Veljum grænu leiðina – fyrir umhverfið og heilsuna,“ segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Akureyrarbær mun næstu daga miðla fjölbreyttu efni sem tengist þema vikunnar bæði hér á heimasíðunni og á samfélagsmiðlum. Vikan hefst á Degi íslenskrar náttúru, 16. september, og lýkur á bíllausa deginum 22. september.“

„Akureyringar eru hvattir til að deila á samfélagsmiðlum mynd af sér á vistvænni og heilsusamlegri ferð með myllumerkinu #samgönguvika eða #mobilityweek. Þá tökum við fagnandi á móti myndum á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.“

„Í tilefni vikunnar er líka gráupplagt að finna út hvaða samgöngur henta þér best. Smelltu hér til að opna könnunina Hvaða samgöngukrútt ert þú?“ segir á vef Akureyrar.