Fara í efni
Fréttir

Flughált – margir hafa dottið og brotnað

Töluverður fjöldi fólks hefur komið á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri í dag og í gær eftir að hafa dottið á svelli. Nokkuð er um að fólk hafi handleggs- og fótbrotnað, skv. upplýsingum frá sjúkrahúsinu.

„Það er greinilega flughált og hálkan virðist lúmsk undir snjónum. Það er hálla en maður heldur,“ sagði starfsmaður á bráðamóttökunni við akureyri.net í dag. Viðkomandi hvetur fólk til þess að fara varlega og bendir á að við aðstæður sem þessar sé mjög gott að nota mannbrodda.