Fljótandi sána opnar við Hof í júlíbyrjun
Fyrirtækið MeiSauna ApS stefnir að því að opna fljótandi sánu við Hof á Akureyri síðustu vikuna í júní eða í byrjun júlí, ef allt gengur samkvæmt áætlun.
„Við erum aðeins á eftir áætlun en markmiðið er að opna eftir fjórar til fimm vikur,“ segir Meinhard Egilsson Olsen, eigandi fyrirtækisins, í samtali við akureyri.net.
Tvö sánahús við Hof
Um er að ræða tvær sánur á einum fljótandi palli við bryggjuna hjá Hofi. Pallurinn er þegar tilbúinn undir húsin en sánahúsin sjálf eru í smíðum í Noregi og verða flutt hingað til lands þegar þau eru tilbúin. Hvert sánahús tekur allt að tíu manns í einu og er bæði búningsaðstaða og sturtur í húsunum. Gestir ganga beint út á pallinn þar sem sánahúsin eru staðsett á frá bryggjunni við Oddeyrarbót og geta síðan farið niður stiga í sjóinn til sjóbaðs ef þeir kjósa það.

Fyritækið MeiSauna er með sambærileg sánahús bæði í Noregi og Færeyjum.
Hægt að vera í áskrift
Að sögn Meinhards verður starfsemin opin allt árið, frá um klukkan sex á morgnana til tíu á kvöldin. Boðið verður bæði upp á almennar heimsóknir og einkabókanir fyrir hópa. Venjuleg heimsókn varir í 75 mínútur. Gestir bóka tíma á netinu og fá þá sendan staðfestingarkóða sem veitir aðgang að sánunni og aðstöðunni. Miðað er við að stakur aðgangur kosti 2300 krónur en fyrirtækið mun einnig bjóða heimamönnum sérstök áskriftarkjör. „Við viljum hafa þetta á þægilegu verði fyrir heimafólk þannig að fólk geti nýtt sér aðstöðuna reglulega,“ segir Meinhard og bætir við að boðið verði upp á pláss fyrir 150 áskrifendur fyrsta árið. Áhugasamir geta fylgst með nánari fréttum á Instagram reikningnum MeiSauna.
Aðstaða tryggð í Oddeyrarbót til tveggja ára
Helsta óvissan þessa dagana snýr að leyfum og úttekt frá heilbrigðisyfirvöldum en Meinhard reiknar með að það gangi allt vel upp og að gestir geti farið að nota sánahúsin í sumar. Fyrirtækið MeiSauna rekur nú þegar tvær sánur í Færeyjum og 23 í Noregi. Fyrirtækið hefur tryggt sér aðstöðu við Oddeyrarbótina næstu tvö árin. Að sögn Meinhards telja forsvarsmenn verkefnisins að staðsetningin við Hof og Pollinn henti starfseminni mjög vel. „Þarna er nú þegar mikil starfsemi og við teljum að fjölbreyttari afþreying geti gagnast öllum á svæðinu,“ segir Meinhard.

Bókanir í sánuna munu fara fram á netinu. Gestir fá lykilorð til að komast inn í húsin og leiðbeiningar sendar í tölvupósti. Hver sánastund, með fataskiptum og sturtu tekur alls 75 mínútur. Húsin verða þrifin daglega. Mynd: MeinSauna