Fara í efni
Fréttir

Fljótandi sánahús komin upp við Hof

Flott útsýni er úr sánahúsunum. Gestir munu sjá út en ekki verður hægt að sjá inn. Mynd: SNÆ

Tvær fljótandi sánur verða teknar í notkun við Oddeyrarbót í næstu viku, gangi lokafrágangur samkvæmt áætlun. Opnunin hefur tafist um rúma tvo mánuði, meðal annars vegna vandræða við flutning húsanna og tafa á sérsmíðuðu gleri. Forsvarsmenn Book Sauna hafa þegar augastað á frekari uppbyggingu hér á landi.

„Loksins er húsið komið og við hlökkum til að bjóða upp á þessa nýjung hér á Akureyri,“ segir Henrik Oftedal, framkvæmdastjóri Book Sauna, um fljótandi sánahús sem var dregið að Oddeyrarbót í vikunni. Upphaflega stóð til að opna sánurnar í lok júní eða byrjun júlí. Henrik segir fyrirtækið hafa verið fullbjartsýnt á þá tímaáætlun en vandamál hafi komið upp við flutning til landsins, auk þess hafi orðið óhapp með eina af stórum glerrúðum húsanna. Um er að ræða sérstakt þriggja laga lagskipt gler sem þarf að framleiða í réttri stærð og tók um fjórar vikur að fá nýja rúðu.

Nú er hins vegar frágangur á lokametrunum og þegar blaðamann akureyri.net bar að garði voru iðnaðarmenn á fullu að tengja rafmagn í húsin. Eins er einnig eftir vinna við að festa flotbryggjuna betur. Henrik segist binda vonir við að hægt verði að opna fljótlega eftir helgi.

Tvö sánahús á fljótandi palli eru komin til Akureyrar á vegum Book Sauna. Gestir geta bókað sig í sánatíma á netinu í gegnum booksauna.is og síðar í gegnum Noona appið. 

Hægt að bóka einkasánu

Sánurnar tvær standa á fljótandi palli við bryggjuna í Oddeyrarbót, skammt frá Hofi. Hvort hús rúmar allt að tíu manns í einu og verður því hægt að taka á móti allt að 20 gestum samtímis. Gestir geta gengið beint úr sánunni út á flotpall og farið þaðan niður stiga í sjóinn. Einnig stendur til að koma upp ferskvatnssturtu við hvort hús og skilrúmi á milli þeirra til að auka næði. Fyrirtækið hefur tryggt sér aðstöðu á þessum stað til tveggja ára.

Gömul tengsl við Akureyri

Book Sauna rekur yfir 30 sánur í Noregi og segir Henrik að Akureyri hafi orðið fyrir valinu bæði vegna aðstæðna og persónulegra tengsla hans við bæinn. Gamall vinur hans er Akureyringur sem flutti ungur til Noregs. Þeir gengu þar saman í skóla og léku knattspyrnu saman. Í gegnum hann hafi Henrik fengið tengsl við fólk á Akureyri sem hafi aðstoðað við verkefnið.

Henrik segir að þegar hann komst að því að engin fljótandi sána væri á Akureyri hafi hugmyndin rúllað af stað. Hann nefnir meðal annars skammdegið, áhuga fólks á hreyfingu og heilsu og sterka norræna baðmenningu sem ástæðu fyrir því að hann telji að hugmyndin geti gengið jafnvel hér á Akureyri og í Noregi. Hann telur ekki að sterk sundlauga- og baðmenning Íslendinga geri markaðinn á Íslandi erfiðan. Þvert á móti sé um annars konar upplifun að ræða og hreina viðbót við það sem fyrir er. Gestir geta meðal annars bókað sánuna fyrir hópa, hvort sem um er að ræða vini, par eða aðra sem vilja eiga stund saman í næði.

Sánahúsin eru steinsnar frá Hofi. Iðnaðarmenn vinna nú hörðum höndum að því að tengja rafmagn og fleira sem þarf til að sánahúsin verði starfshæf. Áhugasamir geta fylgst með á Instagramreikningnum booksauna.is  Mynd: SNÆ

Hófleg verðlagning

Þegar um einkabókun er að ræða þá er hópurinn einn með sánuna en einnig verður boðið upp á opna tíma. Endanleg verðskrá er í vinnslu en samkvæmt henni er stefnt að því að einkabókun kosti á bilinu 2500-3000 krónur á mann en stakur aðgangur í opna tíma verður á lægra verði. Hann leggur áherslu á að verðlagningin verði hófleg svo heimamenn geti nýtt sér aðstöðuna reglulega. Fyrirtækið stefnir einnig að því að bjóða upp á áskriftarmöguleika en Book Sauna vinnur nú að eigin smáforriti og segir Henrik líklegt að áskriftarleið verði tekin upp þegar forritið verður tilbúið síðar á árinu.

Bókunarkerfið verður annars að mestu sjálfvirkt. Gestir bóka tíma á netinu í gegnum Booksauna.is og fá aðgangskóða sendan í síma og tölvupósti. Þeir geta síðan opnað aðstöðuna sjálfir. Ofnarnir verða fjarstýrðir og sánan byrjar sjálfkrafa að hitna þegar bókun berst. Henni verður haldið við lágan grunnhita þegar hún er ekki í notkun en hituð upp í um 70 gráður fyrir bókaðan tíma. Gestir geta síðan stillt hitann sjálfir, allt upp í um 90 gráður. Starfsfólk á Akureyri mun sjá um eftirlit og þrif en aðstaðan verður þrifin daglega.

Henrik með fljótandi sánahúsin í baksýn. Alls geta 20 manns verið þar í sánu í einu. Mynd: SNÆ

Stærri áform á Íslandi

Henrik sér fyrir sér að sánan nýtist bæði heimamönnum og ferðafólki og miðað við upplifun sína frá Noregi sér hann tækifæri í farþegum skemmtiferðaskipanna sem vilja upplifa norrænt sána og sjóböð. Hann segir staðsetninguna við Pollinn sérstaklega góða, ekki síst vegna útsýnisins yfir fjörðinn og fjöllin.

Sánahúsin við Oddeyrarbót eru þó aðeins byrjunin. „Já, við verðum klárlega sýnileg víðar en bara á Akureyri,“ segir Henrik og staðfestir að fyrirtækið hafi stærri áform á Íslandi en að reka aðeins sánurnar tvær við Hof. Akureyri sé hins vegar kjörinn staður til að prófa hugmyndina, enda sé þar bæði öflugur heimamarkaður og mikill fjöldi ferðamanna.