Flestir greiða hærri fasteignagjöld en í fyrra
Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Akureyrarbæ og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í þjónustugátt sveitarfélagsins og á island.is, eftir því sem fram kemur í frétt á vef sveitarfélagsins. Þrátt fyrir að álagningarprósenta fasteignaskatts hafi lækkað milli ára munu flestir fasteignaeigendur greiða meira í fasteignagjöld en í fyrra. Munar þar mest um talsverða hækkun á fráveitugjaldi, auk þess sem hækkun á fasteignamati, sem er skattstofn fasteignaskatts, vegur sums staðar þyngra í krónum talið en lækkun álagningarprósentunnar.
Á verðlagseftirlitsvef Alþýðusambands Íslands (ASÍ) er hægt að bera saman breytingar á gjöldum milli ára og innan hverfa hvers sveitarfélags. Ef dæmi eru tekin um annars vegar 120 fermetra sérbýli og hins vegar 75 fermetra íbúð í fjölbýli má sjá að í öllum tilfellum er um heildarhækkun gjalda að ræða. Hlutfallslega er hækkunin meiri á íbúðum í fjölbýli.

Þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts hjá eigendum 120 fermetra sérbýlis í flestum hverfum Akureyrar munu þeir þurfa að greiða fleiri krónur í fasteignagjöld en í fyrra. Við þessar tölur bætast gjöld vegna sorphirðu, sem innheimt eru með fasteignagjöldum. Tölur fengnar af verðlagsvef ASÍ.
Lækkun á álagningarprósentu fasteignaskatts úr 0,31% í 0,28% skilar fasteignaeigendum í þessum flokki fasteigna lækkun á fasteignaskattinum en hækkun fráveitugjalds og lóðarleigu vegur þann mun upp og gott betur. Hrísey er þar undanskilin en þar hækkar fasteignaskatturinn á þessar tegundir fasteigna. Vatnsgjald er óbreytt frá fyrra ári.
Hlutfallslega meiri hækkun í fjölbýli
Samkvæmt gögnum ASÍ nær lækkun álagningarprósentu fasteignaskatts ekki að vega upp á móti hækkun á fasteignamati 75 fermetra íbúða í fjölbýli og því hækka samanlögð fasteignagjöld hlutfallslega meira hjá þessum hópi fasteignaeigenda en hjá þeim sem eiga 120 fermetra sérbýli.

Hækkun fasteignagjalda hjá eigendum 75 fermetra fasteigna í fjölbýli er hlutfallslega hærri en hjá þeim sem eiga 120 fermetra sérbýli. Við þessar tölur bætast gjöld vegna sorphirðu, sem innheimt eru með fasteignagjöldum. Tölur fengnar af verðlagsvef ASÍ.
Þess skal getið að ASÍ reiknar gjöldin út frá tilteknum forsendum um fasteigna- og lóðarmat í hverju hverfi fyrir sig en hver fasteignaeigandi getur skoðað þróun sinna fasteignagjalda allt frá árinu 2019 í reiknivél ASÍ með því að setja inn matstölur og fermetrastærð sinnar íbúðar.
Sorphirðugjald lagt á 9.200 heimili
Samkvæmt því sem kemur fram í fréttinni á vef Akureyrarbæjar er heildarálagning fasteignagjalda ársins 2026 alls 6.904 milljónir króna. Þar af er sorphirðugjald 545 milljónir króna og er það lagt á 9.200 heimili. Það er fjölgun um 130 heimili frá í fyrra.
Tekjulitlir elli- og örorkulífeyrisþegar fá áfram afslátt af fasteignaskatti og nemur heildarfjárhæðin um 80 milljónum króna. Alls njóta 850 elli- og örorkulífeyrisþegar afsláttar og er hann því um 95 þúsund króna að meðaltali. Afslátturinn er reiknaður út frá tekjum á skattframtali 2025 og ekki þarf að sækja sérstaklega um hann.