Fara í efni
Fréttir

Fleiri geta pantað mat heim frá Krónunni

Bjarki Kristjánsson, verslunarstjóri Krónunnar á Akureyri og Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Húsvíkingar bætast í dag í hóp þeirra Norðlendinga sem geta pantað mat heim í Snjallverslun Krónunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Opnað verður fyrir pantanir á Húsavík í dag, fimmtudag og munu fyrstu pantanir berast bæjarbúum mánudaginn 15. janúar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustunni á svæðinu og nú þegar hefur Krónan hafið heimsendingar á Akureyri, Dalvík, Ólafsfjörð og Siglufjörð,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að Krónan hafi síðastliðin ár unnið að því að auka við og efla dreifingu Snjallverslunar á landsbyggðinni og Norðurland eystra  hafi nú bæst í hóp þeirra svæða sem Krónan þjónustar.

„Upplifun viðskiptavina hefur breyst mikið á aðeins fáeinum árum með tilkomu fleiri valkosta þegar kemur að því að versla í matinn. Með nýrri tækni getum við hugsað dæmið upp á nýtt og þjónustað landsbyggðina betur með bættu aðgengi að fjölbreyttu vöruúrvali á lágu verði, óháð staðsetningu viðskiptavina. Við erum spennt að sjá hvernig Húsvíkingar taka á móti okkur en vel hefur verið tekið í heimsendingar af íbúum í þeim bæjarfélögum sem nú þegar geta nýtt þjónustuna. Þetta er mikill ávinningur fyrir Krónuna og ekki síst viðskiptavini og stefnum við á enn frekari dreifingu á landsbyggðinni í náinni framtíð,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar í tilkynningunni.

Krónubíllinn, sem hér er á ferð rétt fyrir utan Húsavík, mun sjá um heimsendingar á svæðinu.

Allar pantanir verða teknar saman í verslun Krónunnar á Akureyri og hefur undirbúningur og ferlið í heild gengið afar vel að sögn Bjarka Kristjánssonar, verslunarstjóra Krónunnar á Akureyri. „Það ríkir mikil spenna meðal íbúa þessa svæðis að fá loks að nýta sér heimsendingu í gegnum Snjallverslun Krónunnar enda hefur lengi verið beðið eftir þessari þjónustu í nágrenni Akureyrar. Við vonum að eftirspurnin verði góð en hún hefur farið fram úr okkar björtustu vonum á þeim svæðum sem Krónan hefur nú þegar hafið heimsendingar, á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði. Þjónustunnar er beðið með eftirvæntingu á Húsavík og verður spennandi að sjá hvernig viðtökurnar verða,“ segir Bjarki.

Fram kemur að viðskiptavinir á Norðurlandi eystra, eins og annars staðar, fái fría heimsendingu ef pantað er fyrir 18 þúsund krónur eða meira í Snjallverslun. Hægt sé að nálgast Snjallverslun Krónunnar í appi Krónunnar eða á kronan.is.