Fara í efni
Fréttir

Fleiri brautskráðir frá HA nú en áður í febrúar

Háskólahátíð fyrir nokkrum árum. Vegna Covid fá kandidatar nú prófskírteini send til síns heima. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Fleiri brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri í gær en áður á þessum árstíma, alls 64 kandidatar frá þremur fræðasviðum. Stærsta brautskráning frá Háskólanum á Akureyri – Háskólahátíð – fer fram í júní á ári hverju en þess utan stendur stúdentum til boða að brautskrást í febrúar og október.

„Aukninguna má rekja til Covid-19 faraldursins. Á meðan sumir stúdentar ákváðu að gefa sér lengri tíma í ritgerðarvinnuna og seinka þannig brautskráningu voru aðrir sem sem nýttu tímann og tóku aftur upp þráðinn með lokaverkefnin sín og gátu þannig brautskrást frá háskólanum,” segir Bára Sif Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Nemendaskrár, á heimasíðu skólans.

Skipting brautskráðra í gær, 15. febrúar, var þannig:

  • 1 úr kennarafræði, B.Ed.
  • 4 úr menntunarfræði, M.Ed.
  • 2 úr menntunarfræði, viðbótardiplóma
  • 1 úr menntavísindum, MS
  • 4 úr menntavísindum, viðbótardiplóma
  • 2 úr kennarafræðum, MT
  • 2 úr nútímafræði, BA
  • 1 úr sálfræði, BA
  • 1 úr lögfræði, ML
  • 1 úr félagsvísindum, BA
  • 1 úr lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn, grunndiplóma
  • 1 úr lögreglufræði fyrir starfandi lögreglumenn, grunndiplóma
  • 2 úr lögreglu- og löggæslufræði, BA
  • 1 úr rannsóknartengdu meistaranámi í félagsvísindum, MA
  • 14 úr viðskiptafræði, BS
  • 1 úr viðskiptafræði, MS
  • 1 úr líftækni, BS
  • 1 úr sjávarútvegsfræði, BS
  • 1 úr auðlindafræði, MS
  • 1 úr Haf- og strandveiðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða
  • 2 úr hjúkrunarfræði, BS
  • 3 úr heilbrigðisvísindinum, MS
  • 16 úr heilbrigðisvísindum, viðbótardiplóma

Kandídatar fá prófskírteini sín send á lögheimili sitt á næstu dögum.