Fara í efni
Fréttir

FKA ræðir ríkidæmi landsbyggðarinnar

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) heldur ráðstefnu á Akureyri 23. september þar sem „ríkidæmi landsbyggðarinnar“ verður rætt.

„Ráðstefnan ber nafnið Eldhugar en fyrirlesarar verða konur um allt land sem hafa hugrekki og víðsýni að vopni og hafa náð að töfra fram spennandi nýsköpun og tækifæri,“ segir í tilkynningu frá FKA.

„Við fáum að heyra sögur af sigrum og áskorunum, fáum tæki[færi] til að efla tengslin og láta til okkar taka á spennandi tímum þar sem ólíkar raddir og skapandi nálganir um mikilvæg viðfangsefni samtímans.“

Opin almenningi

„Landsbyggðarráðstefna FKA, sem verður þann 23. september nk. í Háskólanum á Akureyri kl. 15, er opin almenningi. Að ráðstefnu lokinni heldur dagskrá áfram fyrir félagskonur FKA með kvöldverði og tengslamyndun. Á laugardeginum verður farið í fyrirtækjaheimsóknir til öflugra félagskvenna á Norðurlandi, Skógarböðin heimsótt og konur af landinu öllu sameinast í höfuðstað Norðurlands til að upplifa orkuna sem gustar þar af konum, eiga samtalið og stilla saman strengi.“

Margt að gerast

,,Það er svo margt gott að gerast staðbundið um land allt þar sem öflugir einstaklingar af öllum kynjum eru að ryðja brautir og það er bæði gaman að vekja athygli á því sem vel er gert en einnig að láta vita af sér um land allt. Það er mikilvægt að skapa nýtt en líka kynna það sem til er og átta okkur á að við getum öll haft áhrif á þróun mála í stóru og smáu. Mörg okkar sinna vinnu og verkefnum frá eldhúsborðinu,“ segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir eigandi Matlifunar og formaður FKA á Norðurlandi.

Félagið hvetur almenning til að mæta í Háskólann á Akureyri 23. september kl. 15 eða nýta sér streymi ráðstefnunnar.

Skráning fer fram hér.