Fara í efni
Fréttir

Fjórir voru heiðraðir á sjómannadaginn

Mynd: Þorgeir Baldursson

Fjórir akureyrskir sjómenn voru heiðraðir í sjómannadagsguðsþjónustu í Akureyri í gær. Þeir eru á myndinni ásamt fulltrúum félaganna tveggja sem að því stóðu.

Frá vinstri: Trausti Jörundarson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar og þeir sem hann heiðraði; Stefán Sigmar Óskarsson og Steinar Óli Gunnarsson. Þá koma skipstjórarnir Arngrímur Brynjólfsson og Bjarni Bjarnason, og lengst til hægri er Pálmi Gauti Hjörleifsson, skipstjóri á Kaldbak og varaformaður Félags skipstjórnarmanna.