Fara í efni
Fréttir

Fjölbreytt dagskrá í tilefni sjómannadagsins

Ljósmynd: Þorgeir Baldursson

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag, 4. júní. Fjölbreytt dagskrá hefur verið undirbúin í tilefni dagsins; á Akureyri er m.a. settur lagður við minnismerki sjómanna, guðsþjónusta er helguð sjómönnum og að þessu sinni bjóða trillukarlar fólki í verbúðir sínar í Sandgerðisbót.

Vert er að vekja athygli á því að í dag verður líkan af Húna II afhjúpað í Iðnaðarsafninu. Þangað eru allir velkomnir.

Föstudagur 2. júní

Iðnaðarsafnið
15.00 Opið hús og sjómannadagsþema:

  • Iðnaðarsafnið 25 ára
  • Líkan af Húna II afhjúpað
  • Veitingar í tilefni dagsins
  • Sýning á skipa- og bátamódelum ásamt ýmsum öðrum hlutum tengdum sjómennsku

Laugardagur 3. júní

Sandgerðisbót 
10.00 - 13.00 „Hátíð hafsins“

  • Trillukarlar bjóða heim
  • Sjómenn heiðraðir
  • Grill fyrir gesti og gangandi og ljúfir sjómannatónar

Fiskihöfn austan við Hagkaup
14.00 - 16.00 

  • Opið í Húna II í tilefni 60 ára afmælis bátsins
  • Léttar veitingar

Sunnudagur 4. júní – Sjómannadagurinn

Akureyri

  • 08.00 Bæjarbúar draga fána að húni
  • 11.00 Sjómannadagsmessa í Glerárkirkju Blómsveigur lagður að minnismerki um drukknaða og horfna sjómenn Súpa í safnaðarheimilinu í boði sjómanna eftir athöfn
  • 11.00 - 14.00 Aðstaða siglingaklúbbsins Nökkva við Höepfner opin til sýnis
  • 13.15 Húni II siglir frá Fiskihöfn (austan við Hagkaup) í hópsiglingu smábáta, selgskúta og sjóbretta
  • Allir bátaeigendur velkomnir að taka þátt í siglingunni
  • 14.30 Sigling með Húna II í boði Sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir
  • kl. 15.30 Sigling með Húna II í boði Sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir (aukasigling ef þarf)

Grímsey

  • Fjölskyldudagskrá um morguninn við höfnina
  • 14.00 Sjómannadagskaffisala í félagsheimilinu Múla