Fara í efni
Fréttir

Fjölbreytt dagskrá í tilefni sjómannadags

Glatt hefur verið á hjalla í Sandgerðisbót um sjómannadagshelgina undanfarin, til dæmis hjá þessum börnum árið 2023. Mynd: Þorgeir Baldursson

Sjómannadagurinn er á sunnudaginn og af því tilefni verður fjölbreytt dagskrá á Akureyri um helgina og í Hrísey og Grímsey á sjómannadaginn sjálfan. Á Akureyri verður t.a.m. mikið um að vera í Sandgerðisbótinni fyrripart laugardags og minningarsigling með Húna verður á sínum stað síðdegis. Á sjómannadaginn má t.d. nefna að kl. 16 verður afhjúpaður minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn, rétt norðan athafnasvæðis Nökkva.

Dagskrá sjómannadagshelgarinnar er annars sem hér segir:

Laugardagur 6. júní

10:00 - 14.00 – Sandgerðisbót

  • Verbúðir í Sandgerðisbót opnar, trillukarlar bjóða upp á sjávarsmakk
  • Sjómannalög óma um alla bótina
  • Grillaðar pylsur og Coke í boði Kjarnafæðis/Norðlenska, Myllunnar og Vífilfells
  • Fiskasýning
  • Bátabryggjurnar opnar og bátar til sýnis
  • Netabætingar og tógsplæsingar kenndar
  • Skipslíkön Sjómannafélags Eyjafjarðar til sýnis
  • Hoppukastalar fyrir börnin
  • Karamellurigning í boði Góu

17:00 – Fiskihöfn - Minningarsigling með Húna

Látinna sjómanna minnst. – „Það vaxa ekki blóm á leiðum sem liggja í votri gröf.“ – Blóm lögð í sjóinn á vinnustað sjómanna eftir minningarstund. Öll velkomin meðan skipspláss leyfir. 

Minnisvarðinn um síðutogara og síðutogarasjómenn var fluttur á Höepfnerssvæðið í vikunni. Hann verður afhjúpaður á sunnudaginn. Mynd: Hilmar Friðjónsson 

Sunnudagur 7. júní – Sjómannadagurinn

08:00 – Fánadagur

  • Bæjarbúar draga fána að hún

11:00 – Sjómannadagsguðsþjónusta

  • Messa í Akureyrarkirkju
  • Sjómenn heiðraðir

13:00 og 14:15 – Hópsigling smábáta og Húna II

  • Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta
  • Öll velkomin

16:00 – Höepfnerssvæðið - minnisvarði afhjúpaður

  • Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn afhjúpaður


Hópsigling á sjómannadaginn 2025. Húni II og hátt í 30 smábátar sigldu úr Sandgerðisbót og inn á Poll. Mynd: Þorgeir Baldursson 

GRÍMSEY

Kvenfélagið Baugur heldur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.

 
HRÍSEY
 
Dagskrá á sjómannadaginn, 7. júní:
 
  • 10:00 Sigling
  • 11:11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju
  • 12:00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu, tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis. Leikir og sprell á svæðinu
  • 15:00 Kaffisala kvenfélagsins í Íþróttamiðstöðinni
  • 16:00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda

Föstudagskvöldið 5. júní munu félagar úr Björgunarsveit Hríseyjar ganga í hús og selja sjómannadagsmerki til styrktar félaginu.