Fjölbreytt dagskrá á hinsegin hátíðinni
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn eftir rúma viku, dagana 18.–21. júní. Hátíðin er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Norðurlandi eystra ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin dögum í Hrísey.
„Dagskráin er óðum að skýrast. Meðal þess sem boðið verður upp á eru námskeiðin Raddir gegn hatri og Hinnblástur auk tónleika, sögukvölds og hinsegin sögugöngu. Að venju verður glæsileg dagskrá í Hrísey með gleðigöngu, regnbogamessu, sundlaugardiskói, tónleikum og músíkbingói,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
Einstaklingar, félög og fyrirtæki eru þar hvött til að taka þátt með því að flagga regnbogafánum og jafnvel standa fyrir viðburðum. Áhugasamir geta haft samband á netfangið hinseginhatid@akureyri.is.
„Hinsegin hátíðin fagnar fjölbreytileika og eflir sýnileika LGBTQ+ samfélagsins með því að stuðla að opnu og öruggu samfélagi fyrir alla íbúa og gesti. Nánari upplýsingar og yfirlit yfir viðburði má finna á vefsíðunni www.hinseginhatid.is.“
Hátíðin hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra árið 2026.