Fara í efni
Fréttir

Fjárlög: Jákvæð teikn fyrir Akureyri

Mynd: Akureyri.is.

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar fjallaði á fundi sínum í liðinni viku um fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra fyrir komandi ár. 

Í bókun bæjarstjórnar sem samþykkt var samhljóða að lokinni umræðu kemur meðal annars fram að ýmis jákvæð teikn sé þar að finna fyrir Akureyrarbæ og nærsvæði, til að mynda fjármagn til stækkunar verkmenntaskóla, tryggt fjármagn vegna nýrrar legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri, aukið fjármagn vegna menningarsamningsins og bætt rekstrarskilyrði fyrir Háskólann á Akureyri. 

Bæjarstjórn minnir jafnframt á mikilvægi þess að nægt fjármagn fylgi þeim verkefnum sem sett eru í hendur sveitarfélaga. Þá fagnar bæjarstjórn boðaðri fjárfestingu í innviðum sveitarfélaga varðandi varnar- og öryggismál. Minnt er á mikilvægi áframhaldandi eflingar alþjóðlegrar fluggáttar á Akureyri og stjórnvöld eindregið hvött til að skera ekki niður fjármagn til Sóknaráætlana landshlutanna.

Bókun bæjarstjórnar er í heild svohljóðandi: 

Þegar rýnt er í frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 má finna ýmis jákvæð teikn fyrir Akureyrarbæ og nærsvæði. Þar má m.a. nefna fjármagn til stækkunar verkmenntaskóla, tryggt fjármagn fyrir framkvæmdir við nýja legudeild SAk, hækkun menningarsamningsins og bætt rekstrarskilyrði fyrir Háskólann á Akureyri.

Fjölmörg verkefni eru sameiginleg ábyrgð ríkis og bæjar. Bæjarstjórn Akureyrar vill því minna á mikilvægi þess að nægt fjármagn fylgi þeim verkefnum sem sett eru í hendur sveitarfélaga. Enn er gap milli tekna og gjalda þegar kemur að málaflokki fatlaðs fólks, og nauðsynlegt að fjármagna betur bæði þjónustu og búsetuúrræði. Þá er ljóst að innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna er ekki lokið, og því er áfram brýnt að framkvæmdavaldið fylgi verkefninu vel eftir. Jafnframt þarf ríkið að standa við skuldbindingar sínar um fjármögnun þjónustu við öll börn með fjölþættan vanda.

Bæjarstjórn fagnar boðaðri fjárfestingu í innviðum sveitarfélaga er varða varnar- og öryggismál. Ýmsir innviðir sveitarfélagsins varða beinlínis þjóðaröryggi og ættu að falla undir alþjóðlegar skuldbindingar þegar kemur að útgjöldum til varnartengdra verkefna. Þá eru ýmis tækifæri fyrir ný verkefni, bæði hvað varðar innviðauppbyggingu og þjónustu.

Áframhaldandi efling alþjóðlegrar fluggáttar á Akureyri er ein mikilvægasta efnahagslega aðgerðin sem stjórnvöld geta ráðist í, og myndi auka verðmætasköpun á svæðinu og skapa hér skilyrði fyrir enn fjölbreyttara atvinnulíf. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar ítrekar því áskorun sveitarfélaga landshlutans, þess efnis að rekstri, uppbyggingu og markaðssetningu Akureyrarflugvallar verði komið fyrir hjá sérstakri stjórn eða félagi. Markmið slíkrar aðgerðar er að tryggja áframhaldandi uppbyggingu flugvallarins og að hann sé kynntur sem ein af gáttum Íslands.

Að endingu: Bæjarstjórn Akureyrarbæjar hvetur stjórnvöld eindregið til þess að skera ekki niður fjármagn til Sóknaráætlana landshlutanna, enda kemur niðurskurður niður á verkefnum sem styðja með beinum hætti við atvinnuþróun og menningarlíf í landshlutanum.