Fjallabyggð vill fá þyrlu til Akureyrar
Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að setja fram tímasetta og fjármagnaða áætlun um fasta starfsstöð björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri. Áskorunin var samþykkt á fundi bæjarráðs 27. ágúst.
Í áskoruninni tekur bæjarráðið undir tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri og vísar jafnframt til jákvæðrar umsagnar Landhelgisgæslunnar um málið. Þar kemur fram að föst viðvera þyrlusveitar á Akureyri myndi hafa mikil áhrif á björgunar-, sjúkraflugs- og eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar. Með starfsstöð á Akureyri væri unnt að ná til allra landshluta innan 90 mínútna á hefðbundnum degi og efla jafnframt viðbragðsgetu á norður- og austurmiðum og á hálendinu.
Landhelgisgæslan hafði aðeins fulla viðbragðsgetu 61% ársins 2025. Í umsögn stofnunarinnar kemur jafnframt fram að óskynsamlegt sé að flytja eina af núverandi þyrlum til Akureyrar án þess að fjölga bæði þyrlum og áhöfnum.
Bæjarráð Fjallabyggðar vill því að við næstu fjárlagagerð verði lögð fram tímasett og fjármögnuð áætlun um fjórðu björgunarþyrluna, sjöundu þyrluáhöfnina og nauðsynlega aðstöðu á Akureyri. Jafnframt verði hafið eins árs tilraunaverkefni í samræmi við tillögu Landhelgisgæslunnar, með fasta starfsstöð á Akureyri að markmiði.
„Allir landsmenn eiga að njóta sambærilegs öryggis og viðbragðsgetu, óháð búsetu,“ segir í áskorun bæjarráðs Fjallabyggðar.