Fara í efni
Fréttir

Finnur Mar Ragnarsson Arctic Open meistari

Arctic Open meistari 2025, Finnur Mar Ragnarsson, með verðlaunin, og Sandra Barilli, sem sá um veislustjórn á lokahófi mótsins. Mynd: gagolf.is.

Arctic Open golfmót Golfklúbbs Akureyrar fór fram um liðna helgi. Keppendur voru 280, þar af 36 erlendir kylfingar frá Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Englandi, Skotlandi, Wales, Noregi og Danmörku. Finnur Mar Ragnarsson stóð uppi sem sigurvegari í punktakeppni með forgjöf og telst því Arctic Open meistari 2025. Finnur Mar og Valgeir Bergmann Magnússon enduðu jafnir með 81 punkt hvor, en Finnur Mar hlaut titilinn þar sem hann var með betri árangur á seinni 18 holunum.

Sagt er frá mótinu og úrslitum á vef Golfklúbbs Akureyrar. Þar kemur fram að mikil stemning hafi verið á laugardagskvöld þegar mótinu lauk formlega, 40. Arctic Open mótinu, með kvöldskemmtun og lokahófi. 

Verðlaunahafar á mótinu:

  • Punktakeppni m/forgjöf - Arctic Open meistari
    1.sæti: Finnur Mar Ragnarsson 81 punktur (betri seinni 18)
    2.sæti: Valgeir Bergmann Magnússon 81 punktur
    3.sæti: Halldór Guðmann Karlsson 78 punktar

  • Höggleikur án forgjafar
    1.sæti: Ingi Steinar Ellertsson 145 högg
    2.sæti: Víðir Steinar Tómasson 146 högg
    3.sæti: Tumi Hrafn Kúld 147 högg

  • Höggleikur án forgjafar 55+ karlar
    1.sæti: Guðmundur Sigurjónsson 156 högg
    2.sæti: Bogi Nils Bogason 158 högg
    3.sæti: Jón Þór Gunnarsson 160 högg

  • Höggleikur án forgjafar konur
    1.sæti: Anna Jódís Sigurbergsdóttir 165 högg
    2.sæti: Unnur Elva Hallsdóttir 175 högg
    3.sæti: Halla Berglind Arnarsdóttir 179 högg

  • Nándarverðlaun
    Fimmtudagur
    4. hola: Úlfar Biering 114 sm
    8. hola: Guðmundur Gíslason 118 sm
    11. hola: Einar Viðarsson 86 sm
    14. hola: Kristófer Einarsson 155 sm
    18. hola: Sævar Guðmundsson 101 sm
    Föstudagur
    4. hola: Ottó Hólm Reynisson 23 sm
    8. hola: Sæbjörg Guðjónsdóttir 144 sm
    11. hola: Björn Óskar 164 sm
    14. hola: Ingi Steinar Ellertsson 72,5 sm
    18. hola: Sæbjörg Guðjónsdóttir 29 sm