Fara í efni
Fréttir

Fimm sóttu um starf framkvæmdastjóra

Fimm sóttu um stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar við Sjúkrahúsið á Akureyri, en umsóknarfrestur rann út 15. október. Hildigunnur Svavarsdóttir gegndi starfinu, en var ráðin forstjóri sjúkrahússins fyrir skemmstu.

Umsækjendur um starfið eru, í stafrófsröð:

Anna Sigríður Vernharðsdóttir, ljósmóðir

Bergþóra Stefánsdóttir, teymisstjóri

Erla Björnsdóttir, mannauðsráðgjafi

Hulda Sigríður Ringsted, mannauðsstjóri

Ólöf Árnadóttir, deildarstjóri