Fara í efni
Fréttir

Fimm í haldi lögreglu vegna þriggja mála

Fimm eru í haldi lög­reglunnar á Akureyri vegna rannsóknar þriggja aðskildra mála, tveggja kyn­ferðisaf­brota­mála og lík­ams­árásar í bænum um helgina. Þetta kemur fram á mbl.is í dag.

Um 40 manns voru tekn­ir fyr­ir of hraðan akst­ur um helg­ina á Ak­ur­eyri og í nærsveit­um, að því er mbl hefur eftir varðstjóra hjá lögreglunni.

Mikið er um að vera í bænum þessa dagana; Bíladagar standa fram á þriðjudag og fjöldi fólks er einnig í bænum vegna júbílantahátíða gamalla stúdenta frá MA, og brautskráningar frá skólanum 17. júní.

Frétt mbl.is