Fara í efni
Fréttir

Ferro Zink: Magnús er nýr framkvæmdastjóri

Magnús Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ferro Zink hf. Magnús er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið PMD stjórnendanámi frá HR.

Magnús hefur víðtæka reynslu af rekstri og fjárfestingum. Hann hefur starfað m.a. sem umdæmisstjóri VÍS, útibússtjóri hjá Landsbankanum, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Landsbankans, verkefnastjóri fjárfestinga hjá SSNV auk ráðgjafarstarfa og stjórnarsetu, segir í tilkynningu frá félaginu.

„Ég er spenntur að hefja störf hjá Ferro Zink, enda um rótgróið og gott fyrirtæki að ræða. Ég kynntist félaginu á sínum tíma þegar ég var viðskiptastjóri þess hjá Landsbankanum og hef ávallt fylgst með framgangi þess síðan. Það verður skemmtileg áskorun að fá að leiða öflugan hóp starfsmanna Ferro Zink til framtíðar,“ er haft eftir Magnúsi í tilkynningunni. 

Magnús er í sambúð með Sigurrósu Jakobsdóttur, starfsmanni Þekkingar hf, og eiga þau tvo syni. Magnús mun hefja störf hjá Ferro Zink um miðjan ágúst.

„Ferro Zink er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem veitir viðskiptavinum sínum margþætta þjónustu á sviði framleiðslu, stálsölu, zinkhúðunar, sandblásturs og verslunar. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri en félagið rekur einnig starfsstöð í Hafnarfirði. Starfsmenn eru um 40,“ segir í tilkynningu frá félaginu.