Fara í efni
Fréttir

Fengu viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf

Níels Einarsson og Þorsteinn Gunnarsson. Ljósmynd: Daníel Starrason.

Þorsteinn Gunnarsson og Níels Einarsson fengu í vikunni viðurkenningu frá Háskólanum á Akureyri og Akureyrarbæ fyrir ötult starf í þágu norðurslóða. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, afhenti þeim viðurkenninguna, sem veitt er í tilefni af 20 ára afmæli Háskóla norðurslóða (University of the Arctic, UArctic) en árleg ráðstefna sem fram átti að fara að hluta á Akureyri – en er nú rafræn – verður haldin 15.- 18. maí.

Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir:

  • Þorsteinn Gunnarsson var rektor Háskólans á Akureyri frá 1994-2009 og á stóra hlutdeild í uppbyggingu norðurslóðasamstarfs á Íslandi, á sviði mennta og  vísinda. Sem rektor Háskólans á Akureyri lagði Þorsteinn grunninn að þeirri miðstöð norðurslóða sem varð til á Akureyri og hefur haldið áfram að starfa í málaflokknum af mikilli hugsjón. Má í því samhengi nefna Vísindaviku norðurslóða, en Þorsteinn hafði veg og vanda af því að leiða það verkefni á síðasta ári.
  • Níels Einarsson er forstöðumaður Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem er íslensk norðurslóðastofnun sem hefur verð starfandi síðan 1997. Stofnuninni er ætlað innlent og alþjóðlegt hlutverk viðvíkjandi rannsóknum, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og samvinnu á sviði sjálfbærrar þróunar og umhverfismála á Norðurslóðum. Stofnunin heyrir undir Umhverfisráðuneytið.

Þorsteinn og Níels fengu málverk eftir Guðmund Ármann ásamt árnaðaróskum frá Eyjólfi Guðmundssyni, rektor Háskólans á Akureyri og Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra Akureyrar.