Fréttir
Féll nokkra metra en slapp ótrúlega vel
18.11.2026 kl. 16:00
Sjö ára stelpa, Hildur Elfa Bjarkadóttir, slapp ótrúlega vel þegar hún féll rúmlega þrjá metra niður um þak gangsins milli íþróttahússins Bogans og Hamars, félagsheimilis Þórs, á mánudaginn. Þakið er úr plexígleri.
„Það er svo sannarlega einhver sem passar upp á Hildi Elfu,“ skrifaði móðir hennar, Ingunn Embla Kjartansdóttir á Facebook. Hildur Elfa „lenti á mjöðminni en skólataskan og vetrarfötin sem hún var í björguðu sennilega ansi miklu og dempuðu fallið. Hún slapp lygilega vel miðað við aðstæður og við ólýsanlega þakklát að ekki fór verr,“ skrifaði Ingunn Embla.
Hildur Elfa var flutt með sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á Akureyri, var þar yfir nótt en fékk að fara heim síðdegis í gær. Vinstri handleggur er brotinn, hún er með skrámur í andliti og töluvert marin á vinstra fæti og mjöðm, að sögn Bjarka föður hennar. Hildur Elfa var að koma af fótboltaæfingu ásamt vinkonum sínum þegar hún gekk upp á þakið til að ná sér í grýlukerti sem hékk fram af þakbrúninni.

Hildur Elfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir slysið og kominn heim aftur í gær.