Fara í efni
Fréttir

Fékk í skrúfuna og dregin til Akureyrar

Bergey VE kemur með Bylgju VE til Akureyrar í hádeginu. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Togarinn Bergey VE frá Vestmannaeyjum kom með annað Eyjaskip, Bylgju VE, í togi til Akureyrar í hádeginu. Bylgja fékk í skrúfuna norður af Vestfjörðum, kafari mun bjarga málum í Akureyrarhöfn og skipið síðan snúa til veiða á ný. Bergey var komin með fullfermi og tækifærið verður því notað og landað á Akureyri.

Bergey er í eigu Bergs-Hugins en eigandi Bylgju er samnefnd útgerð.