Farþegarnir miður sín og furðu lostnir
Farþegarnir sem flugstjóri Transavia vísaði frá borði á Akureyrarflugvelli í morgun, áður en haldið var af stað til Amsterdam, eru miður sín og segjast furðu lostnir yfir ákvörðuninni.
Frétt akureyri.net um að sex hefðu verið skildir eftir vegna ölvunar þriggja í hópnum vakti mikla athygli en maður í hópnum sem blaðamaður ræddi við síðdegis þvertók fyrir að þremenningarnir hafi verið mjög drukknir eða með læti. Þeir hefðu drukkið tvo eða þrjá bjóra á flugvellinum og það hefði komið þeim í opna skjöldu þegar flugstjórinn tilkynnti fólkinu að það yrði að fara frá borði.
Einn sexmenninganna, Ingólfur Samúelsson, segist í samtali við Vísi ætla að sækja um endurgreiðslu þar sem hann telji flugstjórann ekki hafa haft rök fyrir því að vísa hópnum úr vélinni. Þegar Vísir talaði við Ingólf á leið til Keflavíkur og hugðist fljúga þaðan til Amsterdam í kvöld.
„Þegar flugstjórinn kom aftur í flugvélina hélt ég að hann væri að tala við fólkið fyrir aftan okkur,“ segir Ingólfur við Vísi. „Mér finnst þetta hryllilega lélegt, við vorum búin að spenna beltin. Ég er bara orðlaus yfir þessu.“
Frétt Vísis: Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“