Fara í efni
Fréttir

Fannst tímabært að opna rafskutluleigu

Viðar Ernir Reimarsson er framkvæmdastjóri Akureyri Scooters. Hér er hann ásamt föður sínum Reimari Viðarssyni en öll fjölskyldan hjálpar til með reksturinn samhliða öðrum störfum Mynd:SNÆ

Akureyri hefur nú eignast sína fyrstu rafskutluleigu, Akureyri Scooters. Leigan er til húsa á Eyrinni og hennar helstu viðskiptavinir eru farþegar skemmtiferðaskipanna. Hjólin geta þó einnig nýst heimamönnum með skerta hreyfigetu en eins sjá eigendur fyrir sér að þau geti verið skemmtileg upplifun í gæsanir eða aðrar uppákomur. 

Það er 21 árs gamall háskólanemi í fjármálaverkfræði sem er framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Viðar Ernir Reimarsson, en faðir hans, Reimar Viðarsson, sem og aðrir fjölskyldumeðlimir eru honum til halds og trausts, svo um sannkallað fjölskylduverkefni er að ræða. „Við ákváðum að slá til eftir að fyrrum vinnufélagi pabba setti svona leigu upp á Ísafirði. Það vakti mikla athygli þar og okkur fannst bara kominn tími á að bjóða upp á eitthvað svipað hér á Akureyri,“ segir Viðar Ernir.

Rafskutlurnar henta vel fyrir ferðafólk með skerta hreyfigetu en eins fyrir heimamenn sem vilja gera eitthvað öðruvísi og skemmtilegt. Skutlurnar eru bæði til leigu og sölu. Mynd: SNÆ

Gilið ekkert vandamál

Leigan er með alls 30 rafmagnsskutlur frá framleiðandanum Heela, 20 eins manns hjól og 10 tveggja manna. Skutlurnar ná allt að 25 km hraða og draga um 35–40 km á einni hleðslu. Þær eru ætlaðar fyrir göngustíga og henta vel til að fara um miðbæinn, upp í Lystigarðinn eða í Innbæinn. Og Gilið, brattasta gatan á Akureyri, er ekkert mál, Viðar Ernir segir að hjólin hafi sérstaklega verið prófuð í Gilinu án vandræða.

„Þessa fyrstu daga hafa viðskiptavinirnir verið fjölbreyttir. Við erum staðsettir hér á bryggjunni – Tangabryggju – og höfum aðallega verið að sinna skipafarþegum, eldri borgurum með skerta hreyfigetu en líka ferðamönnum sem vilja sjá meira af Akureyri á stuttum tíma. Þetta eru örugg og þægileg tæki sem gefa fólki skemmtilega upplifun af bænum og tækifæri til þess að ferðast um á sínum forsendum,“ segir Viðar Ernir sem er afar sáttur við móttökurnar sem leigan hefur fengið. Til dæmis kom kona til þeirra sem var á ferðalagi með fullorðna móður sína sem átti erfitt með gang. Mæðgurnar leigðu tveggja manna skutlu sem gaf þeim möguleika á að ferðast saman um bæinn á auðveldan hátt. „Þær voru báðar alsælar þegar þær komu til baka, búnar að sjá það helsta í bænum,“ segir Viðar Ernir og heldur áfram: „Þá höfum við fengið hópa sem hafa leigt nokkrar skutlur saman til að fara í bæjarferð og fólk hefur skemmt sér konunglega því þetta er líka frábær skemmtun.“

Feðgarnir segja rafhjólin vera örugg og þægileg tæki sem gefa fólki skemmtilega upplifun af bænum og tækifæri til þess að ferðast um á sínum forsendum. Á myndinni til vinstri eru þeir fyrir utan húsnæði  Akureyri Scooters á Tangabryggju. Nánari upplýsingar um þjónustuna má fá á Facebooksíðu fyrirtækisins.  Mynd: SNÆ

Skutlur líka til sölu

Skutlurnar eru ekki bara til leigu heldur einnig til sölu og eru nú þegar nokkur eintök seld. Þá eru uppi hugmyndir hjá fyrirtækinu að bjóða upp á langtímaleigu á rafskutlum fyrir bæjarbúa, sérstaklega þá sem glíma við hreyfihamlanir. „Við höfum nú þegar verið í sambandi við Sjálfsbjörg því hjólin nýtast ekki bara fyrir ferðamenn heldur geta þau líka verið virkilega gagnleg fyrir fólk hér á Akureyri og nágrannasveitunum sem þarf á svona lausnum að halda,“ segir Viðar Ernir. Þá bætir hann við að fólk sem er að hugsa um kaup á eigin rafskutlu geti t.d. byrjað á því að leigja skutlu hjá þeim til þess að sjá hvernig það kann við hjólið áður en ákvörðun er tekin um kaup.

Eins og áður segir er fyrirtækið til húsa á Tangabryggju, í húsnæði sem í eina tíð hýsti rannsóknarstofu KEA. Í framtíðinni sér Viðar Ernir fyrir sér að afhendingarstaðir á skutlunum geti verið víðar og jafnvel í samstarfi við aðra aðila í bænum. Þá hefur hann einnig verið að bjóða fyrirtækjum að auglýsa á skutlunum sjálfum. „Þetta er bara rétt að fara í gang hjá okkur, við höfum bara haft opið í viku en möguleikarnir á þróun eru margir og við erum bara spenntir fyrir framhaldinu,“ segir Viðar Ernir að lokum.

Akureyringar, takið eftir númeraplötunum á hjólunum!