Fara í efni
Fréttir

Fallegt veður í dag og bjart framundan

Þessi virðulega „dama“, Embla, kaus að halda sig að mestu í akureyrskum skugga í morgun. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Það sem sumir kalla Akureyrarveður, í léttum dúr auðvitað, hefur glatt bæjarbúa og gesti síðustu daga. Sól í heiði, hitastigið vel viðunandi og margir léttklæddir á ferli. Sólskin er enn í dag og hiti var sagður 15 stig um hádegisbil.

Góðu veðri er spáð áfram næstu daga. Reyndar má eiga von á nokkuð stífri vestanátt í kvöld og eftir hádegi á morgun en sólar nýtur væntanlega eitthvað dag hvern fram yfir helgi og hiti verður líklega 15-16 stig þegar best lætur.