Fara í efni
Fréttir

Fagnar komu Ingvars í Sjálfstæðisflokkinn

Ingvar Þóroddsson, sem sagði í morgun skilið við þingflokk Viðreisnar og gekk til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Norðausturkjördæmis og varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður í Norðausturkjördæmi, tilkynnti í morgun að hann hefði ákveðið að segja skilið við þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.

Viðreisn fékk einn þingmann í kjördæminu í síðustu alþingiskosningum, sem þýðir að flokkurinn er ekki lengur með þingmann í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo þingmenn og er frá og með deginum í dag með þrjá þingmenn.

„Frábær viðbót“

Ingvar sat í dag sinn fyrsta þingflokksfund Sjálfstæðisflokksins. Jens Garðar Helgason, oddviti flokksins, er jafnframt varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann fagnar komu Ingvars.

„Ingvar er frábær viðbót við þingflokk Sjálfstæðisflokksins og í þingmannahóp okkar í Norðausturkjördæmi. Þetta þýðir meðal annars að við getum enn frekar sinnt okkar stóra og víðfeðma kjördæmi og barist af enn meiri krafti fyrir hagsmunamálum íbúa og fyrirtækja í kjördæminu. Enda hefur Ingvar verið skýr í sínum svörum um að ein stærsta ástæða þess að hann yfirgefur Viðreisn séu skatta- og gjaldahækkanir á fólk og atvinnulíf í landinu, ekki síst í Norðausturkjördæmi,“ segir Jens Garðar við akureyri.net.

Þekkjast vel og höfðu talað saman

Jens Garðar segir að Ingvar muni taka sæti í einhverjum nefndum á vegum Alþingis fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Engin ákvörðun hafi þó enn verið tekin í þeim efnum. Tíðindi dagsins komu Jens Garðari lítt á óvart.

„Við Ingvar þekkjumst vel og höfum átt samtöl um hans mál síðustu misseri, enda eru svona ákvarðanir ekki teknar í skyndi. Yfirlýsing hans ber þess merki að hann er búinn að ígrunda þessa ákvörðun sína vel og af yfirvegun,“ segir Jens Garðar Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

  • Frétt akureyri.net í morgun:

Ingvar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn