Fréttir
Fáðu innsýn í verkefni doktorsnema við HA
26.02.2026 kl. 13:00
Á málþingi, sem haldið verður í Háskólanum á Akureyri næstkomandi þriðjudag fá gestir tækifæri til að kynnast fjölbreyttum rannsóknarverkefnum doktorsnema við skólann.
Doktorsnemarnir munu flytja stutt erindi um verkefni sín og veitt verður innsýn í doktorsnám og rannsóknarumhverfi háskólans.
Að kynningum loknum gefst gestum kostur á að taka þátt í opnu samtali við doktorsnemana, spyrja spurninga og ræða rannsóknir þeirra nánar.
„Doktorsnemar eru lykilþáttur í rannsóknastarfi Háskólans á Akureyri og mikilvægt að skapa vettvang þar sem rannsóknir þeirra verða sýnilegar,“ segir Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri skólans við akureyri.net. „Með málstofunni viljum við opna samtalið og gefa fólki tækifæri til að kynnast þeirri þekkingarsköpun sem á sér stað innan háskólans.“
- Málþingið verður í anddyrinu á Borgum, þriðjudaginn 3. mars frá kl. 9.00 til 10.30.
Doktorsnemarnir sem kynna verkefni sín:
- Ashani Arulananthan
- Kristrún María Björnsdóttir
- Maria Finster Úlfarsson
- María Dís Ólafsdóttir
- Unnur Magnúsdóttir
Nánari upplýsingar um rannsóknarverkefni doktorsnemanna má finni hér: Nýjar raddir í vísindum