Fara í efni
Fréttir

FA og VITA Sport sameinast sem Verdi

Lúðvík Arnarson, framkvæmdastjóri Verdi og Ragnheiður Jakobsdóttir fjármálastjóri.

Ferðaskrifstofa Akureyrar (FA) og VITA Sport í Reykjavík hafa sameinast undir nafninu Verdi. Hið nýja fyrirtæki mun hafa tvær starfsstöðvar,  í miðbæ Akureyrar og á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn verða 11, sex á Akureyri og fimm í Reykjavík. 

Ragnheiður Jakobsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar, verður fjármálastjóri Verdi. „Til að byrja með er markmið Verdi að verða sterkt vörumerki á ferðaskrifstofumarkaði á Íslandi,“ segir Ragnheiður. „Með sameiningu munu hins vegar opnast möguleikar á enn frekari sókn til fleiri hópa en verið hefur. Framtíðin er því björt.“

Allt er vænt, sem vel er grænt ...

Til gamans má geta þess að verdi er latína og merkir grænn!

Ferðaskrifstofa Akureyrar var stofnuð árið 1947 og hefur annast skipulagningu ferðalaga jafnt innan lands sem utan. Ferðaskrifstofan hefur verið sú eina utan höfuðborgarsvæðisins með svokallað IATA ferðaskrifstofuleyfi, sem veitir aðgang að bókunum og útgáfu farmiða hjá flugfélögum um allan heim.

„Við munum að sjálfsögðu halda áfram að þjónusta okkar tryggustu hópa; árshátíðarhópa, saumaklúbba, vinnustaði og íþróttahópa.“ segir Ragnheiður.

Boðið verður upp á pakkaferðir frá Akureyrarflugvelli og Keflavíkurflugvelli, bæði sólarlandaferðir og borgarferðir. Þá mun Verdi verða áberandi í íþróttaferðum og bjóða ferðir á leiki í enska knattspyrnuvelli, á HM í hestaíþróttum og handbolta, Gothia Cup, Partille Cup og fleira.

VITA Sport hefur skipulagt íþróttaferðir á vegum ferðaskrifstofunnar VITA, sem stofnuð var árið 2008 og rekin af FERIA, dótturfélagi Icelandair Group. VITA Sport hefur boðið upp á fjölbreytt úrval ferða frá Íslandi, góða þjónustu, úrval hótela og flugkost á samkeppnishæfu verði, að því er segir í tilkynningunni.

Sterkt vörumerki

„Við sameiningu sjáum við fyrir okkur að úr verði sterkt vörumerki, byggt á mjög hæfu og reynslumiklu starfsfólki í ferðabransanum,“ segir Lúðvík Arnarson, framkvæmdastjóri Verdi í tilkynningunni.

„Bæði fyrirtækin voru á ákveðnum tímamótum, ekki síst með tilliti til tæknilegra þátta eins og bókunarkerfis,“ segir Lúðvík. „Fyrirtækin hafa unnið náið saman í gegnum tíðina og það er góð reynsla af samstarfinu. Þegar hugmyndin kom upp, var báðum aðilum ljóst að til framtíðar væru mikil samlegðaráhrif af því að sameinast og búa til nýtt vörumerki og eitt félag úr þessum tveimur fyrirtækjum.“