Fara í efni
Fréttir

Eyþór spilar þjóðsöng Úkraínu í kirkjunni

Þjóðhátíðardagur Úkraínu er í dag og af því tilefni mun Eyþór Ingi Jónsson, organisti í Akureyrarkirkju, spila þjóðsöng landsins og Bæn fyrir Úkraínu í stuttri samveru sem hefst klukkan 16.00 í kirkjunni. Þangað eru að sjálfsögðu allir velkomnir.

„Það má segja að Bæn fyrir Úkraínu sé „andlegur þjóðsöngur“ Úkraínu,“ segir Eyþór Ingi. „Ég spila svo sjálfan þjóðsönginn, sem er afar kraftmikill og flottur.“