Fara í efni
Fréttir

Erla Björnsdóttir nýr mannauðsstjóri SAk

Erla Björnsdóttir hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra við Sjúkrahúsið á Akureyri. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

„Erla hefur góða og fjölþætta þekkingu á sviði mannauðsstjórnunar sem og fjölbreytta og áralanga reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu. Hún hefur frá árinu 2018 starfað sem mannauðsráðgjafi við Sjúkrahúsið á Akureyri og tímabundið gegnt stöðu mannauðsstjóra. Erla hefur einnig unnið sem verkefnastjóri á sjúkrahúsinu, hjá Embætti Landlæknis auk þess sem hún stýrði innleiðingu á betri vinnutíma vaktavinnufólks og fór með verkefnastjórn og upplýsingagjöf í tengslum við viðbragðsstjórn vegna Covid-19,“ segir á vef SAk.

„Erla hefur BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og MS-MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst, ásamt því að hafa sótt sí- og endurmenntun á sviði mannauðsmála, gæðamála, upplýsingatækni og heilbrigðisþjónustu.“