Fréttir
Er eitthvað fegurra en eyfirsk miðnætursól?
11.07.2026 kl. 11:00
Mynd: Hilmar Friðjónsson
Hverjum þykir sinn fugl fagur, eins og þar stendur og þar af leiðandi við hæfi að slá því fram að ekkert sé fegurra en miðnætursólin við Eyjafjörð. Að minnsta kosti fátt, svo hæfilegrar hógværðar sé gætt ... Hún hefur reyndar oft verið meiri en í gær en var þó örugglega nógu tilkomumikil til að þeir sem upplifðu fyrirbærið í fyrsta sinn hafi fallið í stafi. Hilmar Friðjónsson fangaði fegurðina á miðnætti í nótt; skemmtiferðaskipið Britannia er við Tangabryggju og L'Austral, mun minna og ekki eins áberandi, við Oddeyrarbryggju. Farþegar lögðust vonandi ekki snemma á koddann í gærkvöld heldur nutu dýrðarinnar úti á dekki. Þota DHL á leið frá Los Angeles til Frankfurt skilur þarna eftir sig sólarstrik sem setur skemmtilegan svip á miðnættið.