Fara í efni
Fréttir

Engir stórtónleikar á Akureyrarvöku í ár

Einn af hápunktum Akureyrarvöku hafa verið stórtónleikar í Gilinu. Í fyrra komu þar t.d fram Í Todmobile, Hjálmar, Floni og Elín Hall.Nú verður breyting þar á og aðrar upplifanir verða í boði. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Akureyrarbær hyggst breyta áherslum á Akureyrarvöku í ár með það að markmiði að styrkja sérstöðu hátíðarinnar og skapa annars konar stemningu en áður hefur tíðkast.

Samkvæmt Þórgný Dýrfjörð, forstöðumanni menningar-, markaðs- og atvinnumála hjá Akureyrarbæ, felst stærsta breytingin í því að engir stórtónleikar verða á laugardagskvöldinu neðst í Gilinu eins og verið hefur. Þess í stað verður meiri áhersla lögð á dreifða menningarviðburði, þátttöku bæjarbúa og nýtingu miðbæjarins. Rökkurró í Lystigarðinum verður á sínum stað á föstudagskvöldinu og á laugardeginum verða fjölbreyttir viðburðir í boði um allan miðbæinn.

Ekki niðurskurður heldur breytt stefna

Þórgnýr segir að breytingarnar séu ekki tilkomnar vegna niðurskurðar heldur séu þær hluti af meðvitaðri stefnu varðandi það að gefa Akureyrarvöku, sem haldin verður helgina 28.-29. ágúst í ár, meiri sérstöðu og aðgreina hana betur frá öðrum bæjarhátíðum. „Akureyrarvaka er þannig hátíð að hún þarf ekkert alltaf að vera eins“, segir Þórgnýr og bætir við að skipuleggjendur vilji færa hátíðina nær þeirri stemningu að fólk geti gengið á milli staða og rekist á fjölbreytta og óvænta menningarviðburði víðs vegar um bæinn. Breytingarnar séu því tilraun til að þróa Akureyrarvöku áfram sem sérstaka bæjar- og menningarhátíð með eigin karakter. 

Akureyrarvaka verður með öðru sniði í ár en breytingin er liður í því gefa hátíðinni meiri karakter og sérstöðu.  Bæjarbúar og fyrirtæki eru hvött til þess að vera með viðburði í miðbænum.  Mynd: Hilmar Friðjónsson.

Ný svæði í miðbænum virkjuð fyrir viðburði

Í ár verður áherslan fyrst og fremst á miðbæinn og segir Þórgnýr að til standi að reyna að virkja svæði sem hafa hingað til verið lítið nýtt fyrir viðburði. Þar nefnir Þórgnýr meðal annars port og bakgarða í miðbænum sem mögulega vettvanga fyrir smærri uppákomur og listviðburði. Þá hyggst Akureyrarbær leita beint til fyrirtækja og þjónustuaðila í miðbænum til að fá þau með í verkefnið. Hugmyndin sé að skapa líf og fjölbreytni um allan miðbæinn frekar en að safna öllum viðburðum á einn stað.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir styrki vegna viðburða á hátíðinni, en sótt er um þá í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Eru bæði einstaklingar, hópar og fyrirtæki hvött til að sækja um, en að sögn Þórgnýs stendur til að beina styrkjum í auknum mæli að skapandi og óhefðbundnum verkefnum sem falla að nýrri áherslu hátíðarinnar.