Fara í efni
Fréttir

Stjórnarskráin: málþing í minningu Ágústs Þórs

Lagadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir rafrænu málþingi um endurskoðun stjórnarskrár 2009 – 2017 á fimmtudaginn og er það tileinkað minningu Ágústs Þórs Árnasonar, kennara við skólann. Málþingið er haldið í tilefni útgáfu bókar um endurskoðun stjórnarskrár í ritstjórn Ágústs Þórs og Catherine Dupré.

Bókin ber heitið Icelandic Constitutional Reform: People, Processes, Politics. Meðal þátttakenda eru forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, en bókin hefur m.a. að geyma greinar eftir þau. Aðrir þátttakendur í málþinginu eru fræðimenn og aðrir höfundar greina í bókinni. Málþingið er rafrænt og fer að mestu fram á ensku.

„Þetta rit sem Ágúst Þór Árnason heitinn ritstýrði ásamt Catherine Dupré er einstakt framlag til fræðilegrar umræðu um stjórnarskrármál. Ágúst Þór féll frá fyrir aldur fram vorið 2019 en hann hafði alla tíð látið mikið til sín taka í umræðu og fræðiskrifum um stjórnarskrána og sat meðal annars í stjórnlaganefnd. Hann starfaði við lagadeild HA frá upphafi og vann að undirbúningi stofnunar hennar. Með þessu viljum við í Lagadeildinni ekki síst heiðra minningu hans og vekja athygli á þessari mikilvægu bók sem hann vann að fram í andlátið,“ segir Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor og deildarformaður Lagadeildar Háskólans á Akureyri.

Málþinginu stýrir Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri. Þingið stendur frá klukkan 14 til 16.30.

HÉR er hægt að skrá sig til þátttöku á málþinginu (Zoom webinar)

Dagskrá þingsins er sem hér segir:

Fyrsta málstofa (14:00 - 14:30)

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og einn greinahöfunda: Hefur stjórnarskrárvinna skilað einhverju?

Umræður

Önnur málstofa (14:35 - 15:25)

Í minningu Ágústs Þórs Árnasonar, annars ritstjóra bókarinnar og eins greinahöfunda.

Þátttakendur:

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og einn greinahöfunda: Forsetinn og stjórnarskráin - fjórum árum síðar.

Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Háskólann á Akureyri.

Skúli Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og einn greinahöfunda.

Catherine Dupré, dósent við Háskólann í Exeter, meðritstjóri og einn greinahöfunda.

Umræður

Hlé (15:25 - 15:35)

Þriðja málstofa (15:35 - 16:30)

Þátttakendur og greinarhöfundar:

Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands

Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri

Skúli Magnússon, dósent við Háskóla Íslands

Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands

Málþingi lýkur kl. 16:30.