Fara í efni
Fréttir

Áhyggjur af auknu ofbeldi á Norðurlandi eystra

Aflið er til húsa í Aðalstræti 14. Mynd: Bjarmahlid.is

Áhyggjur eru af auknu ofbeldi og alvarlegum brotum á Norðurlandi eystra. Aflið, samtök fyrir þolendur ofbeldis, sendi frá sér ályktun þess efnis þann 7. mars. Þar skorar stjórn Aflsins á ríkisvaldið að styðja betur við löggæslu á svæðinu, en lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur bent á að fjölga þurfi lögreglumönnum sem fyrst. 

Hér fylgir ályktunin frá Aflinu í heild sinni:

Ályktun stjórnar Aflsins

Stjórn Aflsins – samtök fyrir þolendur ofbeldis, lýsir yfir áhyggjum af auknu ofbeldi og alvarlegri brotum á Norðurlandi eystra. Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur lýst því að á starfssvæði þeirra hafi ofbeldi aukist og að sú aukning eigi við ýmsa málaflokka s.s. kynferðisbrot, líkamsárásir og heimilisofbeldi.

Teymisstjóri Bjarmahlíðar hefur lýst því yfir að þörfin fyrir þolendamiðstöð fyrir þolendur ofbeldis hafi aukist á milli ára, auk þess sem aukin eftirspurn hefur verið eftir þjónustu Aflsins. Þess utan birtast okkur sláandi tölur í íslensku æskulýðsrannsókninni, en þar kom t.d. fram að 20% stúlkna í 10. bekk í grunnskólum Akureyrarbæjar svara því að þær hafi upplifað að annar unglingur hafi haft munnmök eða samfarir við þær gegn þeirra vilja.

Stjórn Aflsins skorar á ríkisvaldið að bæta mönnun í útkalli lögreglunnar á Akureyri, en lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur bent á að bregðast þurfi við og fjölga þurfi lögreglumönnum á stöðinni um minnst tólf.

Stjórn Aflsins hvetur alla þá sem koma að málefnum þeirra sem verða fyrir ofbeldi að taka stöðunni alvarlega og bregðast við með öflugum hætti.

Við getum þetta saman.
F.h. stjórnar Aflsins, Bryndís Símonardóttir
7. mars 2024