Fara í efni
Fréttir

KEA úthlutar 13,5 milljónum í styrki

KEA hefur afhent styrki úr Menningar- og viðurkenningarsjóði félagsins vegna síðasta árs. Þetta var í 87. skipti sem KEA veitir styrki úr sjóðnum en hann á rætur sínar að rekja allt til 1936 þegar fyrsta styrknum var úthlutað úr sjóðnum til Sjúkrahússins á Akureyri. Frá þeim tíma hafa tæplega 1400 verkefni og einstaklingar fengið fjármunum úthlutað úr sjóðnum. Úthlutað var 13,5 milljónum króna að þessu sinni til 46 aðila. Vegna sóttvarnarsjónarmiða fór engin eiginleg athöfn fram að þessu sinni líkt og verið hefur undanfarin ár.

Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA segir það alltaf jafn ánægjulegt að standa að veitingu styrkja úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. „Við í KEA leggjum sérstaka áherslu á samfélagslega ábyrgð í rekstri okkar og ein birtingarmynd þess eru þessar styrkveitingar til einstaklinga, félagasamtaka og verkefna hverskonar,“ segir Halldór í tilkynningu frá félaginu. „Við finnum vel fyrir því að þessir styrkir skipta máli fyrir viðkomandi og einmitt þess vegna er alltaf jafn ánægjulegt að standa fyrir þessu þegar við eigum færi á því. Á meðan við erum í hagnaði af okkar rekstri viljum við láta hluta af afkomu okkar renna til verkefna eins og þessarra.“

Í flokknum Menningar- og samfélagsverkefni voru veittir 16 styrkir, alls rúmlega 2,8 milljónir króna:

  • AkureyrarAkademían, til að halda fyrirlestra á öldrunarheimilum Akureyrarbæjar
  • Kór fyrir alla, rekstrarstyrkur
  • Erla Dóra Vogler, til að halda tónleika með sönglögum við ljóð Þórarins Eldjárns
  • Ferðafélag Akureyrar, vegna byggingar þjónustuhúss við Drekagil
  • Félag um Ljóðasetur Íslands, til að setja upp upplýsingaspjöld á safninu
  • Flugsafn Íslands, vegna Flugdagsins 2021
  • Grófin geðverndarmiðstöð, til kaupa á tækjabúnaði
  • Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir, til að halda fyrirlestra um sjálfsrækt
  • Hrútafélagið, til að halda Hrútadaginn 2021
  • Iðnaðarsafnið á Akureyri, vegna uppsetningar sýninga og fyrirlestra
  • Kammerkór Norðurlands, rekstrarstyrkur
  • Kór eldri borgara á Akureyri, Í fínu formi, rekstrarstyrkur
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri, vegna uppsetningar á söngleiknum Hjartagulli
  • Pétur Þór Jónasson, til að halda ráðstefnuna, Maturinn, jörðin og við
  • Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, til að halda Vísindaskóla unga fólksins
  • Þórduna, nemendafélag VMA, f.h. leikfélags VMA, til uppsetningar á söngleiknum Grís

Í flokknum Íþrótta- og æskulýðsmál hlutu 17 styrki, samtals 8,5 milljónir króna:

  • Braggaparkið
  • Fimleikafélag Akureyrar
  • Hestamannafélagið Léttir Akureyri
  • Íþróttafélagið Magni
  • Íþróttafélagið Völsungur
  • Íþróttafélagið Þór
  • Knattspyrnufélag Akureyrar, KA
  • KFUM og KFUK Akureyri
  • Knattspyrnudeild UMFS, Dalvík/Reynir
  • Knattspyrnufélag Fjallabyggðar
  • Kvennaráð KA/Þórs
  • Skautafélag Akureyrar
  • Skíðafélag Dalvíkur
  • Skíðafélag Ólafsfjarðar
  • Sundfélagið Óðinn
  • Ungmennafélagið Smárinn, Hörgársveit
  • Þór/KA kvennaknattspyrna

Í flokknum Ungir afreksmenn hlutu 12 styrk, 150.000 krónur hver:

  • Alexander Smári Kristjánsson Edelstein, píanó
  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir, golf
  • Arnar Valur Vignisson, frjálsar íþróttir
  • Birnir Vagn Finnsson, frjálsar íþróttir
  • Daði Jónsson, handbolti
  • Elmar Þór Jónsson, knattspyrna
  • Glódís Edda Þuríðardóttir, frjálsar íþróttir
  • Gunnar Eyjólfsson, frjálsar íþróttir
  • Gunnar Pálmi Hannesson, blak
  • Jakob Franz Pálsson, knattspyrna
  • Jakobína Hjörvarsdóttir, knattspyrna
  • Sveinn Margeir Hauksson, knattspyrna

Eitt verkefni hlaut styrk í flokki Rannsókna- og menntamála, 350 þúsund krónur:

  • Birgir Guðmundsson, til að kortleggja stöðu staðbundinnar fjölmiðlunar í kjölfar Covid-19