Fara í efni
Fréttir

Fasteignagjöld í ár 4,2 milljarðar

Heildarálagning fasteignagjalda á Akureyri í ár eru 4,2 milljarðar króna. Þar af er fasteignaskattur 2.456 milljónir króna, lóðarleiga er 538 milljónir króna, vatnsgjald er 346 milljónir króna, fráveitugjald 517 milljónir og sorphirðugjald 344 milljónir. Sorphirðugjald er lagt á 8.392 heimili sem er fjölgun um 156 heimili frá fyrra ári. Á árinu 2020 nam álagning fasteignagjalda samtals 4.069 milljónum króna, hækkar því um tæpar 200 milljónir milli ára.

Álagningarprósenta fasteignaskatts er óbreytt á milli ára, 0,33% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis, 1,63% af öðru húsnæði og 1,32% af fasteignamati skóla, sjúkrahúsa, bókasafna og íþróttahúsa. 

718 lífeyrisþegar fá afslátt

Bæjarstjórn samþykkti breytingu á reglum um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum og hækkaði tekjumörk. 718 elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt og nemur heildarfjárhæð afsláttar tæplega 57 milljónum króna eða 79.144 krónur að meðaltali. Afslátturinn er mishár eftir tekjum en getur hæst farið í 117.700 krónur. 97 fasteignaeigendur njóta hámarksafsláttar. Árið áður nutu 764 afsláttar af fasteignaskatti og nam heildarfjárhæðin 53 milljónum króna.

Allar greiðslur í heimabanka

Frá og með árinu 2021 er ekki boðið upp á greiðslu fasteignagjalda með boðgreiðslum á kreditkort. Allar greiðslur fara fram með kröfu í netbanka. Vakin er athygli á þeim möguleika að skrá kröfur í beingreiðslu, það er hægt að gera í netbanka eða hjá viðskiptabanka greiðanda.

Hesthúsaeigendur fá endurgreitt

Bæjarráð samþykkti nýverið að endurgreiða gjaldendum fasteignaskatts á hesthús hluta af gjöldum síðustu fjögurra ára vegna misræmis á álagningu á hesthús og aðrar fasteignir. Röng álagningarprósenta var lögð á hesthús og hlöður og er því endurgreitt í samræmi við lög um innheimtu um opinberra skatta og gjalda.

Endurgreiðslan á við samtals 128 eignir og nemur heildarfjárhæðin um 6,6 milljónum króna. Meðalfjárhæð endurgreiðslu er 51.752 krónur á hverja eign. Haft verður samband við eigendur þessara fasteigna og greitt út á næstunni, að því er segir á heimasíðu Akureyrarbæjar.