Eldur kviknaði í rútu SBA á Tryggvabraut
Rúta í eigu Sérleyfisbíla Akureyrar er stórskemmd eftir að kviknaði í henni í akstri austur Tryggvabraut á Akureyri seint á níunda tímanum í morgun. Aðeins bílstjóri rútunnar var í henni, en engir farþegar.
Rútan stöðvaðist framan við verslun Krónunnar, rétt vestan hringtorgsins á Tryggvabrautinni. Starfsfólk Krónunnar og Olís hjálpuðu til með slökkvitækjum áður en slökkviliðið kom og slökkti eldinn. Þess má geta að akstursleið slökkvibifreiða frá slökkvistöðinni að staðnum þar sem rútan staðnæmdist er aðeins um 500 metrar.
Akureyri.net fékk sent myndbönd af rútubrunanum. Annað er tekið rétt áður en bílstjórinn stöðvar rútuna, en þar sést hvar nærstaddir veifa til bílstjórans til að gefa honum merki um að kviknað sé í rútunni. Hitt er tekið um það bil sem aðvífandi starfsmenn frá Krónunni og Olís opna vélarrúmið og hefja stlökkvistarf, skömmu áður en slökkviliðið mætti á staðinn. Smellið á myndirnar hér að neðan til að skoða myndbandið.
Eins og sjá má á myndunum hér að neðan myndaðist mikill reykur.


Mikill reykur kom frá rútunni, eins og sjá má á þessum myndum. Starfsfólk Krónunnar og Olís hófu slökkvistarf áður en slökkviliðið kom á staðinn. Aðsendar myndir: Tryggvi Hallgrímsson.

