Fara í efni
Fréttir

Eldhugar – sögur af sigrum og áskorunum

Jóhanna Hildur Ágústsdóttir eigandi Matlifunar og formaður FKA Norðurlandi með erindi á Sýnileikadegi FKA í Arion.

Ríkidæmi landsbyggðarinnar verður rætt á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, á opinni Landsbyggðarráðstefnu FKA sem haldin verður á Akureyri að þessu sinni.

Ráðstefnan verður á morgun, föstudag 23. september, í Háskólanum á Akureyri. Hún hefst klukkan 15.00 og er opin almenningi.

  • Skráning fer fram hér og verður hlekkur sendur á einstaklinga sem skrá sig.

Ráðstefnuna kallar FKA Eldhugar en fyrirlesarar verða konur af öllu landinu „sem hafa hugrekki og víðsýni að vopni og hafa náð að töfra fram spennandi nýsköpun og tækifæri,“ segir í tilkynningu frá FKA. „Við fáum að heyra sögur af sigrum og áskorunum, fáum tæki til að efla tengslin og láta til okkar taka á spennandi tímum þar sem ólíkar raddir og skapandi nálganir um mikilvæg viðfangsefni samtímans.“ 

Margt gott að gerast

„Að ráðstefnu lokinni heldur dagskrá áfram fyrir félagskonur FKA með kvöldverði og tengslamyndun. Á laugardeginum verður farið í fyrirtækjaheimsóknir til öflugra félagskvenna á Norðurlandi, Skógarböðin heimsótt og konur af landinu öllu sameinast í höfuðstað Norðurlands til að upplifa orkuna sem gustar þar af konum, eiga samtalið og stilla saman strengi,“ segir í tilkynningu FKA.

„Það er svo margt gott að gerast staðbundið um land allt þar sem öflugir einstaklingar af öllum kynjum eru að ryðja brautir og það er bæði gaman að vekja athygli á því sem vel er gert en einnig að láta vita af sér um land allt. Það er mikilvægt að skapa nýtt en líka kynna það sem til er og átta okkur á að við getum öll haft áhrif á þróun mála í stóru og smáu. Mörg okkar sinna vinnu og verkefnum frá eldhúsborðinu,“ segir Jóhanna Hildur Ágústsdóttir eigandi Matlifunar og formaður FKA á Norðurlandi.

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.

Sif Jónsdóttir og Jóhanna Hildur Ágústsdóttir stjórnarkonur FKA Norðurlandi og Sigríður Hrund Pétursdóttir formaður FKA við Háskólann á Akureyri.