Fara í efni
Fréttir

Einstefna í Skarðshlíð vegna bílasýningar

Akureyrarbær hefur tilkynnt um að einstefna verði í Skarðshlíð, frá Smárahlíð niður að Undirhlíð, á morgun, 17. júní, kl. 10-18. Er þetta gert til að fjölga bílastæðum í tengslum við bílasýninguna sem verður í Boganum á þessum tíma. 

Reiknað er með að ökumenn leggi bifreiðum norðanmegin í Skarðshlíðinni, en ekið verði niður götuna hægra megin, til austurs niður Skarðshlíðina, eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni.