Fréttir
Einn slasaðist er bíll og mótorhjól rákust saman
20.08.2026 kl. 19:30
Langar biðraðir mynduðust um tíma í dag vegna umferðarslyss skammt sunnan við Vaðlaheiðargöng Eyjafjarðarmegin en eftir rúman klukkutíma var umferð heimiluð á ný. Myndir: Þorgeir Baldursson
Einn slasaðist, þó ekki lífshættulega, þegar bíll og mótorhjól lentu í árekstri sunnan við Vaðlaheiðargöng, Eyjafjarðarmegin, á fjórða tímanum í dag. Loka þurfti fyrir umferð á meðan lögregla og aðrir viðbragðsaðilar athöfnuðu sig á vettvangi.
Í frétt RUV um málið kemur fram að varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra hafi staðfest að ökumaður mótorhjólsins hafi slasast í árekstrinum en hann sé þó ekki í lífshættu. Eins og áður sagði þurfti að loka fyrir umferð og mynduðust töluverðar bílaraðir. Opnað var aftur fyrir umferð eftir rúman klukkutíma, þegar aðgerðum á vettvangi var lokið.

Mynd: Þorgeir Baldursson