Fréttir
Einn nýr strætisvagn og tveir ferlibílar
22.04.2026 kl. 06:00
Ferlibílar Strætisvagna Akureyrar sinna akstursþjónustu fyrir þá sem geta ekki notað almenningssamgöngur í lengri tíma en þrjá mánuði vegna fötlunar, sjúkdóma eða aldurs. Myndin sýnir ekki sams konar bifreið og samþykkt var að kaupa nú. Mynd: akureyri.is.
Umhverfis- og mannvirkjanefnd Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku kaup á einum nýjum strætisvagni og tveimur nýjum ferlibifreiðum. Heildarkostnaðurinn við kaupin er um þremur milljónum króna lægri en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Eitt tilboð barst í nýjar ferlibifreiðar, frá Heklu hf. Heildarverð bifreiðanna skv. tilboðinu er 32.550.000 krónur, sem er um 77% af kostnaðaráætlun.
Þrjú tilboð bárust í nýjan strætisvagn en lægsta tilboðið var úrskurðað ógilt. Samþykkt var að taka næstlægsta tilboðinu, frá Landfara ehf. Strætisvagninn kostar 49.797.823 krónur, sem er 16% yfir kostnaðaráætlun.
Samtals munu bifreiðarnar þrjár því kosta liðlega 82 milljónir króna en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmar 85 milljónir.