Fréttir
Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?
01.08.2025 kl. 06:00

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hefst í dag. Hér fylgir yfirlit yfir dagskrána á hátíðinni og aðra viðburði í bænum – Akureyri.net birtir lista sem þennan aftur að morgni laugardags og sunnudags.
DAGSKRÁIN Í DAG, FÖSTUDAG
Miðbærinn
- 13:00 - Markaðsstemning á Ráðhústorgi, sölubásar og matarvagnar.
- 17:00 - Vamos Versló fest – hinir ýmsu DJ-ar halda stuðinu gangandi í miðbænum.
Kjarnaskógur
- 16:00 - Krakkahlaup Súlur Vertical - Frítt fyrir krakka í boði 66°N, Kjarnafæðis og Ölgerðarinnar. Meiri upplýsingar hér.
Akureyrarvöllur
- 12:00 - 23:30 - Tvö tívolí á Akureyrarvellinum – Tvær mismunandi miðasölur.
Akureyrarkirkja
- 20:00 - Óskalagatónleikar Óskars Péturssonar, Ívars Helgasonar og Eyþórs Inga Jónssonar. – Miðasala við innganginn. Kirkjan opnar kl. 19:00, gott að mæta tímanlega. Hlekkur á viðburðinn á Facebook.
Græni hatturinn
- 21:00 - Classic rock með Magna og Matta
Óskalagatónleikarnir hafa verið vinsælir undanfarin ár, og búast má við húsfylli í Akureyrarkirkju. Krakkahlaup Súlur Vertical er haldið í Kjarnaskógi og orkuboltar af yngri kynslóðinni láta sig ekki vanta. Mynd úr krakkahlaupi: Skapti Hallgrímsson.
Opnunartími safna í dag:
- Listasafnið á Akureyri - 10-17
- Safnasafnið - 10-17
- Minjasafnið - 11-17
- Gamli bærinn í Laufási - 11-17
- Nonnahús - 11-17
- Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi - 11-17
- Iðnaðarsafnið - 11-17
- Davíðshús - 13-17 (leiðsögn kl. 16.00)
- Smámunasafnið - 13-17
- Flóra - Menningarhús í Sigurhæðum - 9-17
- Flugsafn Íslands - 11-17
- Mótorhjólasafn Íslands - 13-17
- Amtsbókasafnið - 8:15-19 (lokað laugardag og sunnudag)
- Ævintýragarðurinn í Oddeyrargötu 17 - 10-20
Yfirstandandi listasýningar:
- Samsýning norðlenskra listamanna - Mitt rými. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 14. september.
- KIMAREK: Innsetning í tilefni fjörutíu ára starfsferils Margrétar Jónsdóttur. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 28. september.
- Ný heildarsýning í Sigurhæðum og verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns. Ath - leiðsögn um sýningarnar á laugardögum á milli 13 - 13.30.
- Línumál - myndlistasýning Vikars Mars í Hofi. Hamragil í Hofi. Sýningin stendur til 23. ágúst.
- TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.