Fara í efni
Fréttir

Eimur fékk 15 milljónir til lífgasvinnslu

Mynd af vef Eims

Eimur hlaut á dögunum hámarksstyrk, 15 milljónir króna, úr Loftslagssjóði fyrir verkefnið Lífgasver í Líforkugörðum við Eyjafjörð. Á vef Eims segir að þarna sé um að ræða Eims, SSNE og Bláma. „Markmið verkefnisins er að undirbúa byggingu lífgasvers þar sem framleitt yrði metangas, að drjúgum hluta úr mykju af nálægum kúa- og svínabúum. Lífmassi er afar vannýtt auðlind á Íslandi og lífgas getur leikið mun stærra hlutverk í orkuskiptum,“ segir þar.

  • Eimur er samstarfsverkefni ýmissa aðila. Með verkefninu er ætlunin að bæta nýtingu orkuauðlinda og auka nýsköpun í orkumálum á Norðausturlandi. Smellið hér til að forvitnast nánar um Eim.

„Meginferlið í lífgasvinnslunni er loftfirrð gerjun lífmassa, en við það ferli verður til metangas sem nýta má sem eldsneyti á farartæki. Til viðbótar við metangasið verður til koltvísýringur í ferlinu sem hreinsa má og nýta til matvælaframleiðslu, en slík starfsemi er vaxandi þáttur í starfsemi lífgasvera víða í Evrópu,“ segir í tilkynningu um styrkinn sem Eimur hlaut.

Loftslagsávinningur verkefnisins er talsverður, segir þar ennframur. „Annars vegar sparast bruni jarðefnaeldsneytis við framboð á metangasi úr innlendri framleiðslu, og hins vegar verður samdráttur í losun vegna bættrar meðferðar mykjunnar. Þá er ótalið kolefnisspor sem sparast við flutninga á aðföngum; eldsneyti, kolsýru og tilbúnum áburði til landsins.

Samfélagslegur ávinningur verkefnisins er einnig talsverður, en með byggingu versins yrði afhendingaröryggi á metangasi á Norðurlandi tryggt til frambúðar. Metangas yrði þannig raunhæfur kostur til orkuskipta, bæði fyrir heimafólk og fyrirtæki á Norðurlandi eystra en einnig fyrir bændur og flutningafyrirtæki sem standa í flutningum á milli landshluta.“

Samhliða úthlutun Loftslagssjóðs hefur Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið veitt 10 milljónum í verkefnið Orkubændur, sem SSNE (Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra) heldur utan um. „Verkefnið snýr að mögulegri aðkomu bænda að lífgasframleiðslu á svæðinu; hvort og hvernig þeir geti nýtt metangas á eigin vélar og hvernig megi stuðla að sem bestu samstarfi um verkefnið,“ segir í tilkynningu SSNE.