Fréttir
Efling sjúkraþjálfun fagnar 30 ára afmæli
30.04.2026 kl. 13:00
Afmælisterta og ávextir tóku á móti skjólstæðingum Eflingar í morgun. Mynd: SNÆ
Efling sjúkraþjálfun fagnar 30 ára afmæli í dag. Af því tilefni var tekið sérlega vel á móti skjólstæðingum fyrirtækisins í morgunsárið.
Efling sjúkraþjálfun var stofnuð í desember 1995 af Einari Einarssyni, Sigrúnu Jónsdóttur og Stefáni Ólafssyni, og tók til starfa í apríl 1996. Í fyrstu voru þrír sjúkraþjálfarar á staðnum en í dag eru starfsmenn 24. Starfsemin er á tveimur stöðum í bænum, í Krónunni og í Kaupangi á samtals 1.300 fermetrar. Stefán, einn af stofnendum Eflingar er enn starfandi hjá fyrirtækinu. Í tilefni tímamótanna setti Efling nýja heimasíðu í loftið og kynnti einnig nýtt lógó fyrir fyrirtækið.