Draga úr bragði af lýsi með nýrri aðferð
Verkefnið Þurrlýsi hlaut titilinn Norðansprotinn 2026 á lokaviðburði nýsköpunarkeppni sem fram fór í Messanum í Drift á Akureyri á miðvikudag. Sjö verkefni voru kynnt til leiks og var Þurrlýsi valið sigurverkefni að loknu mati dómnefndar.
Sem sigurvegari hlaut verkefnið styrk upp á eina milljón króna frá fjárfestingasjóðnum Landvættum slhf., sem er rekinn af Axum verðbréf.
Hreinn Þór Hauksson, framkvæmdastjóri Axum og fulltrúi í dómnefnd, sagði vinnu dómnefndar ekki hafa verið auðvelda, þar sem verkefnin væru fjölbreytt og metnaðarfull. Hann sagði þó niðurstöðuna hafa verið nokkuð afgerandi og að sigurverkefnið bæri með sér mikla framtíðarmöguleika. Með réttri aðstoð gæti það orðið grundvöllur að verðmætri starfsemi og skapað bæði þekkingu og atvinnu.
Lýsisolíu umbreytt í þurrduft
Þurrlýsi snýst um þróun nýrrar framleiðsluaðferðar fyrir lýsi með það að markmiði að auka neyslu þess, sérstaklega meðal yngra fólks. Aðferðin felur í sér að umbreyta lýsisolíu í þurrt duft þar sem olían er hjúpuð í vatnsleysanlegum ögnum. Með því er hægt að draga úr sterku bragði lýsisins á sama tíma og notkunarmöguleikar þess aukast.
Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni sem hefur það að markmiði að styðja við frumkvöðla og draga fram efnilegar hugmyndir á Norðurlandi. Alls bárust 41 umsókn í keppnina að þessu sinni, en sjö verkefni voru valin til að taka þátt í lokaviðburðinum.
Viðburðurinn var opinn almenningi og vakti talsverðan áhuga. Keppnin er hluti af stærra samstarfi sem miðar að því að efla nýsköpun á svæðinu og veita frumkvöðlum vettvang til að kynna hugmyndir sínar og þróa þær áfram.