Fara í efni
Fréttir

Deildarmyrkvaupplifun í Lystigarðinum

Mynd tekin í Lystigarðinum 18. júlí á sumar- og bjórhátíð LYST. Mynd: Haraldur Ingólfsson
Huldustígur ehf. og Bryndís Fjóla verða með viðburð síðdegis í dag, í tilefni af sólmyrkvanum, deildarmyrkva á sólu, í samstarfi við Lystigarðinn á Akureyri.
 
Í kynningu á viðburðinum segir að tekið verði sérstaklega vel á móti gestum garðsins kl. 17, með hvísli og bros á vör og þeim bent á vel valda staði í garðinum þar sem gott er að setjast eða leggjast í kyrrðinni, hvíslast á og meðtaka og upplifa saman þennan merkilega og einstaka viðburð. 
 
Þar segir einnig að Lystigarðurinn sé fullkomin staður kyrrðar í þéttbýli, þar sem fólk geti upplifað upplifað og hlustað á áhrif deildarmyrkvans og nýja tunglsins. Líklegt sé að þegar dimmir verulega kl. 17:46 að náttúran í heild, plöntur, dýralíf, fuglar, vatn, vindur, ljós og landslag bregðist við því að taktur ljóss og myrkurs breytist. „Dýr geta ruglast um stund. Býflugur hætta oft flugi og fuglar þagna eða sýna kvöldhegðun. Þegar birtan snýr aftur hefja margar fuglategundir morgunsöng á ný, líkt og nýr dagur sé runninn upp,“ segir um þennan viðburð.
 
Fólk er jafnframt minnt á að taka með sér teppi, gærur eða sessur til að setjast eða leggjast á, sem og viðurkennd sólmyrkvagleraugu þar sem sólin verði aldrei hulin að fullu enda um deildarmyrkva á sólu að ræða.