Fara í efni
Fréttir

Carsten og Fjóla taka við rekstri Striksins

Tímamót. Frá vinstri: Jóhann Ingi Davíðsson, Heba Finnsdóttir, Fjóla Hermannsdóttir Tarnow og Carsten Tarnow.

Nýir eigendur tóku í dag við rekstri veitingastaðarins Striksins í miðbænum, þau Carsten Tarnow og Fjóla Hermannsdóttir Tarnow. Fyrri eigendur, hjónin Heba Finnsdóttir og Jóhann Ingi Davíðsson, hafa rekið Strikið í sextán ár. Frá þessu er greint á Facebook síðu veitingastaðarins.

Carsten og Fjóla eru vel kunnug í veitinga- og ferðaþjónustunni þar sem þau reka einnig Centrum Hotel og Centrum Kitchen & Bar.

„Við viljum koma á framfæri vinarhug og þakklæti til Hebu og Jóa fyrir að treysta okkur fyrir „barninu“ sínu sem Strikið er,“ segir á Facebook síðu Striksins nú eftir hádegi. Heba og Jóhann hafi unnið sleitulaust við að „gera Strikið að því fyrirmyndar fyrirtæki sem það er í dag hvað varðar gæði í mat og þjónustu og það er okkar loforð að við munum viðhalda því. Við óskum Hebu og Jóa velferðar og horfum með tilhlökkun til komandi tíma.“