Fara í efni
Fréttir

Brynjar Þór forstjóri Fossa fjárfestingabanka

Akureyringurinn Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri Skaga, hefur verið ráðinn forstjóri Fossa fjárfestingabanka. Hann tekur við starfinu frá og með næstu mánaðamótum af Steingrími Arnari Finnssyni.

Fossar er fjárfestingarbanki sem þjónustar innlenda og erlenda fjárfesta á sviði miðlunar fjármálagerninga, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Fossar tilheyra samstæðu Skaga þar sem einnig eru tryggingafélagið VÍS og Íslensk verðbréf.

Brynjar Þór hefur starfað sem fjármálastjóri Skaga frá árinu 2023. Hann starfaði áður sem forstöðumaður eignastýringar Stapa lífeyrissjóðs frá árinu 2018. Þar áður var hann forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslenskum verðbréfum og forstöðumaður eignastýringar hjá Straumi fjárfestingarbanka.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt að taka við forstjórastöðu Fossa á þessum tímapunkti. Á sama tíma og bankanum hefur tekist að vaxa og byggja upp ný tekjusvið undanfarin ár þá er verkefnið að auka samningsbundnar tekjur bankans og bæta arðsemi,“ segir Brynjar Þór í tilkynningu frá Fossum.

„Tækifæri eru fólgin í sérstöðu Fossa á fjármálamarkaði, þar sem styrkleikinn hefur ávallt legið í áherslunni á að vera besti milliliður fjármagns fyrir viðskiptavini. Markmiðið er að nýta þessa styrkleika Fossa og samstæðunnar í heild til að skapa aukið virði og betri þjónustu fyrir viðskiptavini. Hjá Fossum starfar öflugt starfsfólk og ég hlakka til að vinna með því og viðskiptavinum bankans í átt að þessu markmiði.“

Steingrím Arnar hefur gegnt starfi forstjóra Fossa frá því í október 2023 og var einn af stofnendum félagsins árið 2015. Hann verður félaginu áfram til ráðgjafar „í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins,“ segir í tilkynningunni.