Fara í efni
Fréttir

Breytt nafn sparisjóðs – 179 milljóna hagnaður

Stjórn og sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Þingeyinga. Frá vinstri, Eiríkur Haukur Hauksson, Sigríður Jóhannesdóttir, Margrét Hólm Valsdóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Bergþór Bjarnason og Örn Arnar Óskarsson sparisjóðsstjóri.

Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Þingeyinga var 226 milljónir króna fyrir skatta á síðasta ári – hagnaður eftir skatta var 179 milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi sparisjóðsins sem haldinn var 28. apríl síðastliðinn.

„Um síðustu áramót voru heildareignir sparisjóðsins 14,7 milljarðar króna og hafa aukist um 1.553 milljónir á milli ára. Innlán voru á sama tíma um 12,8 milljarðar. Eigið fé sparisjóðsins var 1,5 milljarður í árslok og lausafjárstaða er sterk,“ segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða.

Á aðalfundinum var samþykkt tillaga stjórnar um að breyta nafni sjóðsins úr Sparisjóði Suður-Þingeyinga í Sparisjóður Þingeyinga þar sem það þykir meira lýsandi fyrir starfssvæði sjóðsins.

Á aðalfundinum var tilkynnt að Sparisjóðurinn muni styrkja Velferðarsjóð Þingeyinga um fjórar milljónir króna og einnig verða heilsugæslustöðvar HSN (Heilbrigðisstofnunar Norðurlands) styrktar um fjórar milljónir til tækjakaupa.

Í stjórn sparisjóðsins voru kjörin Bergþór Bjarnason, Dagbjört Jónsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Margrét Hólm Valsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir. Varamenn, Elísabet Gunnarsdóttir og Pétur B. Árnason.