Breytt gjaldskrá hjá Vaðlaheiðargöngum
Mánudaginn 2. mars síðastliðinn tók gildi ný gjaldskrá Vaðlaheiðarganga. Gjaldaliðir hækkuðu almennt um 4% en stærsta breytingin tók reyndar gildi 3. nóvember í fyrra þegar álag á kröfur sem sendar eru í heimabanka var aflagt. Gjaldskráin hækkaði síðast í ársbyrjun 2025.
Sem dæmi má nefna að stök ferð fyrir fólksbíla undir 3,5 tonnum hækkar úr 2.131 krónu í 2.216 krónur. Hægt er að greiða fyrir stakar ferðir á veggjald.is 24 tímum áður en ekið er í gegn og í allt að 24 tíma eftir að ekið er í gegn. Eftir 24 tíma stofnast krafa í heimabanka viðkomandi bíleiganda að upphæð 2.216 krónur en fyrir 3. nóvember sl. var þessi upphæð 3.600 krónur. Það er því einfaldast fyrir vegfarendur sem nota göngin sjaldan að aka einfaldlega í gegn og borga síðan gjaldið í heimabankanum við hentugleika.
Mánaðarkort og árskort hækkuðu ekki
Áfram er hægt að kaupa fyrirframgreiddar ferðir gegnum göngin, fyrir þau sem fara oft í gegn. Með því að kaupa 10 skipti fyrirfram þá kostar hver ferð 1.599 krónur og ef 50 skipti eru keypt í einu þá er kostnaðurinn við hverja ferð 992 krónur. Þessi afsláttarkostir hækkuðu um 4% líkt og stöku ferðirnar og fyrirframgreiddar ferðir fyrnast ekki.

Ný gjaldskrá Vaðlaheiðarganga.
Fyrir stórnotendur er hægt að kaupa mánaðarkort á 26.500 kr. og árskort á 265.000 kr. og þá er hægt að keyra eins oft gegnum göngin og hver vill. Þessi mánaðar- og árskort eru á sama verði og áður. Ekki er boðið upp á afsláttarkort fyrir ökutæki yfir 3,5 tonnum.
Á Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga kemur fram að árið 2025 voru eknar alls um 627.000 ferðir gegnum göngin og liðlega helmingur ferðanna var greiddur með fyrirframkeyptum áskriftarkortum.