Fara í efni
Fréttir

Börn „munaðarvara“ – Margir fara ekki til læknis vegna kostnaðar

Mynd: Þorgeir Baldursson

Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir stéttarfélagið Einingu-Iðju sýnir að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019.

Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju, og Tryggvi Jóhannsson, varaformaður félagsins, kynntu helstu niðurstöðu könnunarinnar fyrir blaðamönnum akureyri.net. Þau segja niðurstöður könnunarinnar leiða í ljós að yngra fólkið sérstaklega eigi sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Ungt fólk sé nú lengur í foreldrahúsum því fasteignakaup eru nánast óyfirstíganleg hindrun fyrir ungt fólk og leigumarkaðurinn er líka mjög erfiður og ótryggur. 

  • 44% hafa miklar eða frekar miklar áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni
  • 55% búa í eigin húsnæði
  • 35% búa í leiguhúsnæði
  • 20% félagsmanna telja sig búa við lítið húsnæðisöryggi

Þeim fjölgar sem búa í leiguhúsnæði.

Vaxandi fjöldi hefur ekki efni á heilbrigðisþjónustu

Þau Anna og Tryggvi segja að staðan í þjóðfélaginu þrengi verulega að og háir vextir íþyngi þeim sem eru að greiða af lánum og geri öðrum ókleift að komast inn á húsnæðismarkaðinn. Afleiðingarnar verða meðal annars þær að lyfja- og lækniskostnaður mætir afgangi.

  • 27% hafa frestað eða hætt við að leita læknis af fjárhagsástæðum og hafa aldrei verið fleiri
  • 20% hafa frestað eða hætt við lyfjakaup af fjárhagsástæðum
  • 44% hafa frestað eða hætt við að leita til tannlæknis af fjárhagsástæðum en það hlutfall var 37% árið 2024

Aldrei hafa fleiri frestað eða hætt við læknisheimsókn af fjárhagsástæðum og á síðasta ári.

Afborganir lána valda erfiðleikum

Tæplega helmingur þeirra sem svaraði könnuninni eru með húsnæðislán sem þau greiða af. Anna og Tryggvi hafa áhyggjur af þeim fjölda sem eru að glíma við yfirdráttarlán og smálán og eiga í erfiðleikum með að greiða af þeim. Að þurfa að grípa til slíkra lána sem neyðarúrræði segir sína sögu um þær aðstæður sem fólk þarf að glíma við til að reyna að framfleyta sér.

  • 49% félagsmanna greiða af húsnæðisláni
  • 16% hafa breytt húsnæðislánum úr óverðtryggðum í verðtryggð til að lækka greiðslubyrði
  • 27% eru með yfirdráttarlán
  • 11% eru með smálán
  • 29% eru ekki með nein lán
  • Tæplega 20% segjast eiga erfitt með að greiða af lánum og þar af nefna 46% yfirdráttarlán, 30% smálán og 29% húsnæðislán

 

Breytingar á leikskólakerfinu bitna fyrst og fremst á konum

Anna og Tryggvi vekja sérstaka athygli á þeim afleiðingum sem breytingar á vistunartíma og/eða gjaldskrá leikskóla hafa haft á hag foreldra með börn á leikskólaaldri. „Börn eru að verða munaðarvara,“ segir Tryggvi og Anna leggur þunga áherslu á að þessar breytingar bitni langverst á konum. „Þetta er stórt jafnréttismál því það eru fyrst og fremst konur sem hafa þurft að minnka við sig vinnu vegna þessara breytinga. Konur eru oftar lægra launaðar en karlar og því ódýrara fyrir heimilið að þær breyti sínum vinnutíma. Og þetta bitnar líka mjög illa á einstæðum mæðrum sem hafa kannski lítið bakland. Afleiðingin er meðal annars sú að fólk þarf að bæta við sig annarri vinnu á kvöldin og um helgar til að reyna að láta hlutina ganga upp,“ segir Anna.

  • 17% félagsmanna er með barn eða börn á leikskóla. Breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá hafa orðið hjá 87% þeirra
  • 44% þeirra sem eru með börn á leikskóla eru mjög eða frekar ósátt við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá og 33% svara hvorki/né
  • 44% hafa stytt vistunartíma barna á leikskóla eftir breytingarnar og 38% hafa þurft að gera breytingar á vinnutíma sínum vegna þess
  • 54% þeirra sem hafa þurft að breyta vinnutíma sínum hafa stytt vinnutímann, tæplega 36% hætta fyrr í vinnunni
  • 21% þeirra sem hafa þurft að breyta vinnutíma sínum hafa aukið vinnu utan dagvinnutíma

Hvernig breytingar hefur þú gert á þínum vinnutíma? Nefna mátti fleiri en einn svarmöguleika.

Meira en helmingur hefur ekki notið styttingar vinnuvikunnar

Könnun Gallup náði til 3.000 félagsmanna Einingar-Iðju og svarhlutfall var ríflega 47%. Í könnuninni var spurt um marga aðra þætti og meðal annars kemur fram að tæp 80% aðspurðra eru sátt eða mjög sátt við þjónustu Einingar-Iðju og 18% svara hvorki né. Einnig er spurt um trúnaðarmenn, vinnutíma og vinnutímastyttingu, launakjör og stöðu á vinnumarkaði.

  • Meðalvinnustundafjöldi á viku hjá fólki í fullu starfi er 44 tímar
  • 60% hafa ekki fengið vinnutímastyttingu frá 40 stunda vinnuviku
  • Meðallaun fyrir dagvinnu eru 620 þúsund og hækkuðu um 5,3% milli ára
  • Heildarlaun voru að meðaltali 774 þúsund og hækkuðu um 9,1% milli ára

Hægt er að skoða niðurstöður þessarar könnunar, ásamt eldri könnunum sem félagið hefur látið gera, á vefsíðu Einingar-Iðju.